Sæl Pernilla, hafðu engar áhyggjur af barninu. Eins og hefur komið fram hér, er hann að læra tvöfalt meira en önnur börn sem læra bara eitt tungumál. Tvítyngi hefur verið rannsakað talsvert af málfræðingum og niðurstöðurnar eru þær að þessi börn séu talsvert lengur en önnur börn að læra að tala. (ég er íslenskufræðingur og lærði slatta um þetta í HÍ) Það er bara spurning um smá tíma og þolinmæði og þá kemur þetta. Frændi minn steinþagði alveg þangað til hann var orðinn þriggja ára en svo á...