Mmm… já ég hef gert ýmislegt sjálf við mína íbúð, ég hef málað hana 3x og alltaf gert það sjálf. Eins tók ég mig til og lagði gólfflísar á baðið og skipti um hluta af innréttingu þar. Það reyndar stóð ekki lengi, því ég skipti aftur um 3 árum síðar, þá um allt á baðinu, uppúr og niðrúr. Flísar blöndunartæki og allt. Þá var reyndar smiður sem ég var með. Enda er baðið miklu flottara núna en það var:)