bindið mig vinsamlegast niður því ég er gangandi vandræði!

Ég hefði sett þetta inn í greinina sem ég sendi fyrir… 2 dögum, ef ég hefði munað eftir því en málið er að…

það er þessi náungi, sem ég kynntist fyrir rúmum mánuði, allt í lagi fínn náungi og allt það, hann var hérna í viku í bænum mínum, bað um E-mail addressuna mína, svo einhvern tíman var ég að senda eitthvað svona keðjubréf, sendi honum líka..

Hann sendi mér til baka og fór þá bara, já, að tjá mér það að hann væri þetta líka þvílíkt hrifinn af mér! Ég varð eitt spurningarmerki HA?! ÉG?!

Svo hefur hann verið að hringja í mig, segist elska mig og að enginn hafi snert hann á þann hátt og ég gerði (sem sagt ég snart hjarta hans (er þetta ekki orðað svona?, ég er alveg rugluð))

Sko besides þá er hann meira ein 10 árum eldri en ég, og ég kæri mig ekkert um einhverjar svona flækjur! Líf mitt er nógu flókið, til þess að það sé ekki verið að flækja það enn meir!

hvernig er hægt að segja honum, á mjúkan hátt að ég hafi barasta ekki snefil af þeim tilfinningum sem hann virðist bera til mín?!

kveðja kvkhamlet (sem virðist fara bara illa með fólk í augnablikinu!)