Það er nauðsynlegt að kyssa negrana á Hellisheiðinni hvert skipti sem farið er fram hjá þeim. Annað boðar ógæfu. Það er meira að segja til eitt glænýtt dæmi um það. Þegar Orkuveitan var að moka þarna fram og til baka þá tóku þeir niður staurana til að fá betra pláss, en eftir það fór all að ganga á afturfótunum hjá þeim. Þá skildist þeim að þetta væri negrunum að kenna og þeir skelltu þeim aftur upp, enda hefur þeim gengið allt í haginn síðan þá. Þannig að berið virðingu fyrir negrunum.