Það hefur vakið furðu mína að hér sé einhver undirskriftarlisti um að mótmæla því að verið sé að “drepa hvolpa”.Málið er hins vegar það að hundarnir komu ólöglega til landsins og skv landslögum er bannað að flytja inn dýr án allra tilskilinna leyfa sem konan hafði ekki handbær.Ef að það yrði leyft að hvert einasta kvikyndi fengi koma hér inn í landið myndi vera hér algjör plága og allt fólk leggjast í sótthví vegna smits.Einnig finnst mér fáránlegt að hafa þetta svona ýkt og loðið “mótmælum því að verið sé að drepa hvolpana” því að ekkert annað er hægt að gera í málinu því skv landslögunum má ekki senda þá út aftur.
Það vill oft vera einkennandi hvað visst fólk reynir alltaf að höfða til mannúðarkenndar hjá fólki undir furðulegustu kringumstæðum eins og þessum.Það veit það hver maður að ekkert er hægt að gera í þessum málum nema þá að titla konuna sem kom með hundana til landsins morðingja því að það var jú hún sem kallaði þennan dauðadóm yfir þá en ekki Íslensk stjórnvöld sem eru bara að framfylgja settum reglum.

Ég vil taka það fram að ég skrifa þessa grein ekki svo mikið út frá mínum skoðunum því að ég vil alls ekki lífláta einn né neinn en í þessu máli er því miður bara engin önnur lausn í boði.