Sælir

Ég hef aðeins verið að fylgjast með ykkur hérna á huga og mér líst mjög vel á greinar sem komnar eru og samræðurnar sem því fylgja. Hins vegar er þetta orðið rosalega þreytt að menn eru að kalla hitt og þetta druslur og svo framvegis. Ég held að menn ættu ekki að vera í skítkasti út í allt og alla, það gerir þennan vef bara einfaldlega leiðinlegan í lestri. Hvaða máli skiptir að Hilux séu eins og þeir eru, þarf endalaust að vera tönglast á því að þeir séu eitthvað verri en aðrir bíla og afhverju eru menn að segja að Musso sé drasl, hafa þeir einhverja persónulega reynslu af því ??
eða hafið þið í alvöru mikið vit á því ??
Allaveganna er ég orðinn hálfþreyttur á að lesa um þetta.

Ég vildi persónulega sjá meiri myndir og nýjungar sem eru á markaðnum, líka hvernig jeppa menn eiga og hvernig þeir eru breyttir og svo framvegis

kveðja