Hver er skoðun manna hér á jeppum með sjálfstæða fjöðrun að framan?
Sumir tala niðrandi um “bí bí og blaka” dót, og ég er að nokkru leyti sammála þeim. Það sýndi sig nefnilega í aldamótaferðinni “Krapa 2000” að öxulhosurnar áttu til að tætast undan þegar krapinn fraus í draslinu. Einnig virðist erfiðara að hreinsa klaka úr þessu miðað við það þegar um heila hásingu er að ræða. Svo eru líka tveim hjöruliðum meira í þessu dóti og þar af leiðandi meira sem getur slitnað og bilað.