Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gmaria
gmaria Notandi frá fornöld 1.684 stig

Hin friðsama þjóð ! (51 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það er fremur óskemmtilegt til þess að vita að ráðamenn okkar skuli hafa fallið í þann pytt að gefa yfirlýsingar í orði um þáttöku í stríði, eins og fréttir frá Prag gáfu til kynna, því gegnum árin hafa Íslendingar haldið sig utan yfirlýsinga þessa efnis, þrátt fyrir þáttöku í Nato. Skyldi einhverjum koma á óvart að slíkt flokkist til stuðnings við hernaðaraðgerðir af hálfu Bandaríkjamanna. Það skyldi þó aldrei vera að þetta hefði eitthvað með endurskoðun varnarsamningsins að gera, en ef við...

Íslenska heilbrigðiskerfið. (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Í Mbl í dag er að finna ágætar hugleiðingar læknisins Jóns Atla Árnasonar sem er sérfræðingur í gigt og lyflækningum um heilbrigðiskerfið hér á landi þar sem sá hinn sami bendir á fjölmargt það sem hefði átt að vera athugunarefni innan þessa kerfis, en þekkist lítt eða ekki hér á landi. Hann gerir m.a. að umtalsefni þá miklu togstreitu sem virðist ríkja millum lækna og hjúkrunarfræðinga og annarra stétta um völd og peninga innan kerfisins. Ég er svo innilega sammála honum, því...

Kaupmáttur skattleysismarka. (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sjaldan eða aldrei hefur verið hafður í frammi eins mikill blekkingaleikur af hálfu ráðamanna varðandi skatta og raunafkomu fólks í landinu, þar sem skattleysismörk hafa ekki fylgt verðlagsþróun,frá 1998, er hefur aftur þýtt það að launahækkanir launa um og yfir skattleysismörk hafa étist upp jafnóðum og gott betur. Þetta mál varðar alla þá er lifa af bótum almannatrygginga með einum eða örðum hætti svo ellilifeyrisþega og öryrkja, tilfinnanlega en jafnframt alla launþega því í réttu samræmi...

Gjaldþrot offjárfestinga í landbúnaði. (31 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Nú er komið á daginn að stóriðjustefnan í landbúnaði hér á landi er allsendis ekki að skila sér, en fram kom í fréttum Ruv, af þingi Bændasamtakanna í dag að fjöldagjaldþrot blasi við kjötframleiðendum er séu að framleiða matvæli undir raunkostnaði. Spyrja má hvers vegna í ósköpunum bændum hafi verið ráðlagt allan síðasta áratug a.m.k. af ráðunautum bændasamtakanna að stækka og stækka bú sín með offjárfestingum að virðist í formi bygginga og tækjakosts ? Það vantar nefnilega ekki að búum...

Fiskveiðistjórnmálamenn ? (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hafa stjórnmálamenn upp til hópa haft sig mjög í frammi í heildina tekið í umræðum um aðalatvinnuveg þjóðarinnar, eða eru það örfáir sem taka til máls í þessum málaflokki með þekkingu að leiðarljósi ? Ég hefi oft velt því fyrir mér hvort ekki þyrfti að viðhafa endurmenntun í pólítik, þar sem til dæmis aðalhagsmunamálum þjóðarinnar væri forgangsraðað, þannig að hver einasti þingmaður væri þess umkominn að mynda sér afstöðu í málum öllum. Nærtækasta dæmið er það vitundarleysi alþingismanna að...

Er kvótakerfi sjávarútvegs hagkvæmt ? (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum

Markaðsstjórnmál. (13 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Frá mínum bæjardyrum séð er lítil landamæri að finna millum flokka í framboði hvað varðar óheftan markaðsbúskap þann er við lýði er því aðal hugmyndir flokka í stjórnarandstöðu fela í sér þau úrrræði, að framkvæma uppboð á óveiddum fiski úr sjó, til þess að hámarka hagnað sem er þó ekki fyrir hendi því gjaldþrot offjárfestinga og lánveitinga vegna framsals , þe. sölu og leigu á óveiddum fiski hafa orsakað þenslu og vaxtakostnað sem sligar landið í heild. Svo virðist sem hugmyndasmiðir í...

Tryggingastarfsemi á Íslandi. (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hér á landi starfa þrjú tryggingafélög, hlutafélög, sem hafa með höndum lögboðið hlutverk að tryggja tjón er kann að hljótast af ökutækjum landsmanna. Iðgjöld félagannna hækka ár frá ári og nær sömu upphæð er um að ræða hjá hverju og einu þannig að enga samkeppni er þar að finna, til hagsbóta fyrir almenning. Útskýring félaganna á iðgjaldahækkunum ár hvert er alla jafna sú að svo og svo mikið af tjónum hafi þurft að greiða út, og sökum þess þurfi að hækka iðgjöldin. Samt sem áður eru til...

Stefnuleysið í heilbrigðismálunum. (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mér hefur oft runnið það til rifja hversu tilbúnir stjórnmálamenn eru að uppáskrifa ALLT er lýtur að nýjungum í heilbrigðisgeiranum enda sitja þeir í súpunni í dag, súpu ofurkostnaðar sem ekki inniheldur að lágmarki grunnþjónustu við ALLA íbúa landsins, heldur aðeins hluta þeirra. Grunnþjónustan kostar nefnilega hvað minnsta skattpeninga okkar og er forvörn númer eitt em sérfræðiþjónustan sem aðeins er til staðar á fjölmennustu svæðum kostar mun meira og óheft aðgengi þar, er firring ein....

Óður til flokka í framboði. (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sjálfstæðir menn, hvar er sjálfstæði ykkar í raun, hví þróast hér misskipting, ranglæti og álíka kaun ? Einstaklingsfrelsið er vanvirt og örfáir menn, ganga um með gróðann, en skatturinn okkar er enn. Framsókn, hví er ekki búið að breyta um disk, afnema framsal og fara að verka hér fisk. Hví eru læknar á launum sem enginn hreint skilur, þarf ekki að taka í taumana þótt komi bylur ? Samfylking úrræða einhverra breytinga en smárra, útjöfnuð vinsældaúrræði virka ekki skárra. Uppboð á markaði,...

Hver á hlut í hverjum, hvar ? (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Nýkomið markaðsþjóðfélag okkar er eins og belja á svelli, þar sem stjórnmálamenn eiga eftir að þurfa að svara fyrir skort á hinum ýmsu skilyrðum hér og þar er komið hefur verið í lög frá Alþingi. Því miður virðist það svo að hinir nýríku markaðsmenn telji vort þjófélag fámennis bera uppi þann “ rándýra markað ” sem komist hefur á laggirnar , markað þar sem hver er nær tilbúin til þess að koma fótum fyrir hinn ef ekki er búinn að kaupa hlut í hinum í 300 þús manna samfélagi. FÁKEPPNI OG...

Kvótakerfið greiðir of litla skatta. (69 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Meginorsök og afleiðing misskiptingar auðs hér á landi er að finna í lögum sem samþykkt voru í þinginu þegar Þorsteinn Pálsson var sjávarútvegsráðherra og fólu í sér leyfi til handa útgerðarfyrirtækjum sjávarútvegs þess efnis að framselja þ.e. selja eða leigja aflaheimildir til veiða fiskjar úr sjó við Ísland. Alhliða brask varð til og þeir sem græddu mest voru þeir er tóku gjald fyrir að sýsla með sölu og leigu á hinum óveidda þorski í sjónum. Fyrirtækin fóru á hlutabréfamarkað og urðu að...

Fátækt á Íslandi. (114 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Forsetinn gerði fátækt að umtalsefni sínu í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar og skoraði á forystusveit verkalýðshreyfingarinnar í landinu til þess að ráðast að þessu þjóðarmeini. Viðbrögð stjórnmálamanna í dag þess efnis að reyna að draga úr því að fátækt sé til staðar í þeim mæli sem forsetinn ræddi geta skoðast að hluta til í ljósi þess að fyrir dyrum eru kosningar til Alþingis að vori. Hvoru tveggja verkalýðshreyfing og kosnir fulltrúar almennings á þingi og til sveitarstjórna bera...

Stjórnmálaleg siðferðisvitund. (63 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Afar fróðlegt hefur verið að fylgjast með umræðum um framboðsyfirlýsingu borgarstjórans í Reykjavík, undanfarið, þar sem ég hefi eigi áður séð eins marga gefa yfirlýsingar þess efnis að ENGU MÁLI SKIPTI ´þótt stjórnmálamaður segi eitt í dag og annað á morgun, um athafnir sínar gagnvart kjósendum. Jafnvel hefur verið gefið í skyn að borgarstjóranum “ fyrirgefist þetta ” vegna þess að hún sé “ kona ”. Þessu til viðbótar hefur það verið dregið fram að það skipti engu máli hvernig farið er að...

Uppsker borgarstjóri eins og hann sáir ? (18 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Framkoma Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur gagnvart samstarfsflokkum sínum í R-Listabandalaginu er einsdæmi, og ljóst er að sú hin sama metur ekki mikils þá flokka er staðið hafa á bak við hana til kjörs sem borgarstjóri. Sama máli gegnir um virðingu gagnvart kjósendum því miður. Þessi ákvörðun hennar nú finnst mér síður en svo til framdráttar fyrir konur í stjórnmálum á Íslandi og reyndar slæm birtingarmynd á því hvernig völdin geta villt fólki sýn, ofan úr Fílabeinsturninum við of langa...

Réttindi barna fótum troðin. (79 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þau sjálfsögðu réttindi barna að fá að hitta foreldra sína báða eru því miður ekki virt hér á landi, og ef til dæmis faðir afhendir móður forræði við skilnað, þá virðist móðirin geta ráðstafað hagsmunum barns nær að vild, án þess að faðir fái þar rönd við reist, jafnvel farið illa með barn sitt og komist upp með það með aðstoð yfirvalda og lögfræðinga svo furðulegt svo sem það nú er. Fyrir skömmu kom faðir barns fram í útvarpi Bylgjunnar og sagði sögu sína þess efnis að hvoru tveggja...

Jól í skugga sorgar. (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Fyrstu jólin eftir ástvinamissi eru mörgum erfið en það skiptir máli fyrir börnin okkar að við tökumst á við þær tilfinningar sem bærast innra með okkur jafnóðum. Við getum heilmargt gert sem hjálpar okkur sjálfum til þess að ganga gegnum þennan skóg viðkvæmra tilfinninga, meðal annars það að taka fram góðu minningarnar um þann sem horfinn er og ræða þær við börnin, því það er sá fjársjóður sem við eigum og vekur jákvæða hugsun. Að sitja við kertaljós að kveldi, þegar börnin eru sofnuð og...

Málefni innflytjenda ekki til í stjórnmálum ? (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég hlýddi á starfsmann Útlendingaeftirlitsins, í viðtali á útarpi Sögu nú á dögunum þar sem sá hinn sami tjáði sig m.a. um það að engin stefnumótun af hálfu íslenskra stjórnvalda væri til, hvorki hvað varðar fjölda innlflytjenda né heldur málefni þeirra almennt. Sjálf hefi ég ekki heyrt einn einasta kjörinn þingmann er situr á Alþingi ræða þessi mál á opinberum vettvangi. Hver er ástæðan ? Getur það verið að íslenskir stjórnmálaflokkar allir sem einn ÞORI ekki að ræða þessi mál af ótta við “...

Sami fjáraustur í heilbrigðismál, sömu skattar. (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er dagljóst að engan á að styggja nú fyrir kosningar, hvað varðar að breyta því sem breyta þarf, t.d. í sjálfvirkri útgjaldaþenslu í heilbrigðiskerfinu, þar sem til dæmis lyfjafyrirtæki og ýmis konar önnur markaðsfyrirtæki blómstra í hinni sjáflvirku útgjaldaaukingu án breytinga nokkurs konar. Þótt viðurkennt hafi verið af þingmönnum að þjóðin hafi ekki efni á þessari “sjúkdómsvæðingu ” kerfisins á samt engu að breyta fyrir kosningar nú frekar en fyrir kosningar síðast. Hin stóra ábyrgð...

Vér mótmælum ! (23 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í stað þess að nota arð af sölu ríkisbankanna til þess að standa við gerða samninga við aldraða og öryrkja eru lagðir nýir skattar á neytendur til þess að standa skil á slíku. Ekki er öll vitleysan eins, heldur aðeins mismunandi. Þegar rýnt er í breytingartillögur fjárlaganefndar fyrir fjárlög 2003, sem er fróðlegt aflestrar, þá má þar meðal annars finna á forsíðu Ýmis verkefni, Til stjórnmálaflokka með hliðsjón af nýrri kjördæmaskipan og breyttum aðstæðum þingmanna af þeim sökum, krónur 35...

Íslenzk lög. (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég fór inn í lagasafnið að skoða lögin um fiskveiðistjórn í gær og komst að því að reglugerðum og viðbótum hefur fjölgað nokkuð, sem ekki gerir lagabálk þennan beinlínis skilvirkan til framkvæmda, heldur veitti ekki af túlki til þess að túlka viðbætur allra handa fram og aftur ára á milli, þar sem mismunandi góðir íslenzkumenn virðast hafa komið að málum við að semja viðbætur í formi reglugerða eða lagabreytinga, þar sem hin mismunandi ákvæði virðast rekast hvert á annars horn. Sameign...

Kvótakerfið er ógn við lifríki hafsins. (43 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Því fyrr sem Íslendingar átta sig á þvi að breyta sínu sjávarútvegskerfi með tilliti til langtímasjónarmiða, því betra fyrir landsmenn alla. Það vill gleymast að Íslendingar hafa yfir miklu hafsvæði að ráða til veiða, og rannsóknir þar að lútandi til dæmis hvað varðar ástand veiðisvæða og uppvaxtarskilyrða þorksins eru all óljós enn sem komið er í því sambandi, því seiðatalning er það eina sem enn er lagt til grundvallar af hálfu hinnar íslensku rannsóknaraðila. Fiskifræði sjómannsins segir...

Verkalýðsflokk til starfa ? (57 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hagsmunir hins vinnandi manns hafa verið fyrir borð bornir allt frá því að bráðabirgðalagasetning á laun kom til árið 1983, og frá þeim tíma hefur verkalýðshreyfing þessa lands “ lúffað ” undir formerkjum þjóðarsáttar þar sem um 30 % félagsmanna hafa samþykkt hvoru tveggja endurkosna forystu ár eftir ár sem og gerða samninga. Launakjör forystumanna í félögum þessum taka ekki mið af meðallaunum verkamanns svo mikið er víst, og allur sá kostnaður sem til staðar er til dæmis við...

Vilt þú ný andlit á Alþingi Íslendinga ? (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok