Jæja, ég hef ætlað að skrifa um þessa ferð frá ég kom heim en hef ekki nennt því, en hérna kemur hún. Ég fór með skólanum í skíða og brettaferð í 3 daga og 2 nætur í Ármannsskála í Bláfjöllum, við mættum um hálf eitt leytið mánudaginn 3. mars, og þetta var besta veður sem ég hef lent í enginn vindur og glampandi sól. Strax og við vorum búnir að ganga frá draslinu okkar var farið út og eitt stykki pallur búinn til. Við héngum á pallinum í svona 2 tíma, athugið, bara í bolum að ofan. Vinur...