Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Táradísin (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Einu sinni var stúlka. Stúlka þessi bar af öllum öðrum stúlkum á landinu. Síðir, ljósir lokkarnir flæddu niður höfuð hennar, léku við litla hálsinn hennar áður en þeir skoppuðu fram af öxlum hennar líkt og gullfoss. Hvítt hörund hennar var slétt og undurmjúkt og myndaði látlausan en fallegan ramma um andlit hennar. Varir hennar voru eplarauðar og munnsvipurinn var alltaf eins og hún væri alveg að fara að kyssa einhvern góða nótt. Fyrir ofan munninn gægðist fram litla nefið hennar. Stundum...

Nýr vinur (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég opnaði hjarta mitt uppá gátt á Internetsins síðum. Ég líðan mína í ljóðform setti ásamt löngunum undurblíðum. Einhver það sá og til mín sendi sérlega fallega strauma. Það fylgdi þeim fjarska góður andi líkt og fyllir góða drauma. Við samskipti hófum og sá ég fljótt að sál þessi var blíð og góð. Þegar við hittumst þá kættist ég dátt og samdi þennan kærleiksóð. Því nú hef ég fundið nýjan vin með næma sál og bjarta. Og ávallt meðan ég andan dreg áttu pláss í mínu hjarta.

Til litla stráksins (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er eins og einhverjum hafi tekist að fanga sólargeislana og sett þá í brosið þitt. Það er eins og einhver hafi náð öllu heimsins sakleysi, allri heimsins forvitni, auk tveggja stjarna af himninum og sett það allt í augun þín. Þessi sami einhver er sólin þín, heimur þinn, himinn þinn, móðir þín.

Rigning (4 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er rigning úti núna. Regndroparnir falla í stríðum straumi niður af himninum og lenda með miklum látum. Samt er hvorki kalt né vindsamt þannig að rigningin fellur nokkuð beint niður. Ég hef alltaf kunnað vel að meta rigningu. Ég get ekki alveg útskýrt það, rigning lætur mér líða vel af einhverjum ástæðum. Ég elska að fara út þegar rignir og fá mér náttúrulega sturtu. Það skiptir mig engu máli þó það sé kalt og það hefur stundum komið mér í koll. Stundum hef ég orðið veikur af því að eyða...

Tvö tilraunaljóð (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Eftirfarandi ljóð eru í raun meira svona tilraun eða æfing með stílinn. Fyrra ljóðið er ort með súlustaði í huga og er svona: Strákar stara á kvennaskara stakir fara heim á leið. Frúrnar snara uppá fara, fá þó bara dreymireið. Og hitt ljóðið er ort undir áhrifum frá LOTR þó svo það passi kannski ekki 100%. Það er svona: Fagur drengur ferðast hljótt og hans fengur á'onum hangir. Ávallt gengur alla nótt, elt'ann lengur skuggar langir.

Vinir (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég horfi á þig úr fjarlægð vinar, nærri en þó svo órafjarri. Læt ekki á neinu bera þótt kremjir þú harta mitt, aftur og aftur, óafvitandi. Sætti mig við brauðmolana sem þú hendir til mín. Bros frá þér til mín, fær hjarta mitt til að brosa. Þinn hlátur af mínum völdum, kveikir í sál minni og heldur henni gangandi allan daginn. Ein lítil snerting, sendir rafstraum í gegnum mig allan og lyftir andanum á flug. Einn saklaus koss, flögrar um huga minn eins og fiðrildi og festir sig í minninu um...

von (8 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Í hvert sinn sem ég sé þig þá líður mér eins og þegar ég sé lögreglubíl í baksýnisspeglinum. Jafnvel þótt engin hætta sé á ferð þá tekur hjartað kipp því það er alltaf möguleiki á að eitthvað gerist.

Ástarljóð (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
-ég geymi glóð eina bjarta -greypta í mínu hjarta -eldurinn eykur sig -löngunin lamar mig -sálin þín saknar -köllunin vaknar -aðeins er pláss fyrir… -þ -i -g

Verslunarleiðangur (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Háværar drunur rífa sundur loftið á Hverfisgötunni. Augnabliki seinna kemur uppspretta hávaðans keyrandi á fleygiferð upp eftir götunni. Gömul, hvít Toyota Corolla sem keyrt er upp Hverfisgötuna, í átt að Hlemmi. Á númeraplötunni má sjá grænan miða til merkis um að endurskoðunar er þörf, ryðblettir og drulla ber þess vott að ekkert hefur verið lagt í þrif á bílnum í lengri tíma. Eins fljótt og bíllinn kom inn í myndina er hann rokinn burtu aftur og hávaðinn minnkar. Í vaxandi fjarlægð má þó...

Black Books (5 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Rúv hefur nú í vetur tekið til sýninga aðra seríu í bresku gamanþáttaröðunum Black Books. Þættir þessir eru á dagskrá á miðvikudagskvöldum klukkan 2130. Þeir fjalla um Bernard Black, eiganda bókabúðar sem er sviðsmynd þáttanna, og tvo vini hans, samstarfsmanninn Manny Bianco og Fran Katzenjammer en hún átti búð sem var við hliðina á bókabúðinni. Bernard er illa við alla viðskiptavini sem koma í búðina og virðist einnig ekkert hafa alltof miklar mætur á vinum sínum. Hann hefur miklu meira...

Robin Williams er góður vondur kall (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í síðustu viku fór ég að sjá tvær nýjar myndir með Robin Williams. fyrst fór ég á sýningu Bíófélagsins 101 á “One Hour Photo” og daginn eftir sá ég Visa forsýningu á myndinni “Insomnia” í Kringlubíó. Það sem þessar myndir eiga sameiginlegt er að í þeim báðum fer Robin Williams með hlutverk “vonda kallsins” ef svo má segja, allavega er hann ekki alveg heill á geðsmunum í þeim báðum. Eru þetta tvær af þrem myndum sem hann lék í með stuttu millibili til að reyna að breyta aðeins um ímynd og...

Barsaga - lokahlutinn (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það er farið að líða vel á flöskuna og kvöldið. Sígarettupakkinn er búinn og hálfur til. Honum finnst hann nánast tilbúinn. Hann snýr sér við og horfir í átt til hennar. Sér til mikillar furðu sér hann að hún horfir á hann. Maðurinn sem var með henni er farinn. Hún situr bara þarna ein og virkar einmana. En hún horfir á hann. Hann horfir til baka, getur ekki annað. Hún hallar höfði og brosir til hans. Hann brosir vandræðalega til hennar og finnst alveg eins og það snarrenni af sér. Stóllinn...

Barsaga - 2. hluti (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tíminn líður. Það eina sem ber þess vitni eru vísar klukkunnar sem hangir á veggnum, en þeir hreyfast hægt og örugglega hvern hringinn á fætur öðrum. Glöggir menn geta einnig séð að innihald flasknanna á hillunni lækkar í takt við hreyfingar í klukkunni. Aðrar vísbendingar er ekki hægt að finna um þá staðreynd að tíminn líði nokkuð á þessum stað. Nú er innan við helmingur eftir af flöskunni sem hann er að drekka úr. Það er samt ekki orðið nóg. Hann lítur aftur yfir á borðið til þeirra. Hún...

Barsaga - 1. hluti af 3 (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hann stöðvar bílinn á gatnamótum. Það er rautt ljós. Úti er myrkur og það rignir. Inni í bílnum óma ljúfir tónar Tom Waits úr lélegum hátölurum. Hrjúfur og hugljúfur á sama tíma þar sem hann syngur um brotna drauma og brostin hjörtu minnipokamanna og –kvenna. Glott færist yfir andlit bílstjórans þar sem hann dregur að sér reykinn úr Viceroy og lætur líða úr sér í bílnum. Teygir sig síðan í viskýpela í farþegasætinu, fær sér sopa og hugsar með sér að tónlistin eigi vel við. Hann hlustar mikið...

Bíó Reykjavík (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Um síðustu helgi var haldið 44 klukkustunda kvikmyndamaraþon. Þeir sem stóðu á bak við þetta voru 6 einstaklingar sem saman kalla sig Bíó Reykjavík. Þeir eru Örn Einarsson, Ragga Gestsdóttir, Jakop Halldórsson, Ragnar Eyþórsson, Gio Shanger og DJ Kári. Hófst maraþonið á miðnætti föstudaginn 13. september (eða tæknilega séð hófst það þann 14.) og lauk ekki fyrr en hálf 9 á sunnudagskvöldið. Sýndar voru alls um 27 myndir og var ókeypis inn. Ég fór þangað og sá alls 13 myndir yfir helgina....

The (f)Art of War (17 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég varð fyrir því óláni um daginn að slysast inn á óvissusýningu á myndinni The Art of War með Wesley Snipes. Aðra eins vitleysu hef ég bara sjaldan séð áður í bíó og hef ég þó séð marga vitleysuna. Handritið er mjög lélegt og söguþráðurinn frekar klisjukenndur og bara leiðinlegur. Það er nákvæmlega EKKERT sem kemur á óvart og það er alltaf hægt að sjá hvað kemur næst. Handritið er skrifað af þeim félögum Wayne Beach og Simon Barry. Wayne Beach hefur bara skrifað eitt handrit áður sem...

Jóla hvað??? (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvað með að hafa í gangi tímabundið svæði sem verður tileinkað Jólunum og öllu því sem því fylgir. Þá geta menn spjallað um jólabaksturinn, jólaskreytingar, jólalögin, jólagjafirnar, jólastemmninguna, jólaandann, jólaauglýsingar, jólasveina, jólakort, jólamat, jólaföndur, jólastress, jólakvíða, jólaboðskap, jólaguðspjallið, jólin og allt þetta dæmi. Hver er til í þetta???

Kennaraverkfallið (29 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst afskaplega tilgangslaust fyrir kennara að fara í verkfall. Tilgangurinn með því að heilu starfsstéttirnar taki sig til og leggi niður vinnu hlýtur að vera sú að skapa pressu á samningsaðila með því að hafa lamandi eða í það minnsta slævandi áhrif á atvinnulífið. Þetta tekst kennurum ekki, a.m.k. ekki fyrr en eftir þó nokkur ár þegar allt í einu hættir að koma menntað fólk út á vinnumarkaðinn. Akkúrat núna hefur kennaraverkfallið engin slæm áhrif á atvinnulífið og meira að segja er...

Deiglan (4 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst vanta eitt svæði hérna á huga.is en það er svæði sem tekur á því sem er að gerast í dag. Það mætti til dæmis vera pólitík eða bara deiglan. Þá væri hægt að rífast um pólitíkina, kennaraverkfallið og bara allt það sem er að gerast í samfélaginu á þeim tíma. Það væri flott ef það væri bara undir svæðinu Tilveran dálkur sem héti deiglan og/eða dálkur sem héti pólitík. Ég er viss um að það færi fram fjörugar umræður þar því það eru margir sem hafa áhuga á því sem er að gerast í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok