Mér finnst vanta eitt svæði hérna á huga.is en það er svæði sem tekur á því sem er að gerast í dag. Það mætti til dæmis vera pólitík eða bara deiglan. Þá væri hægt að rífast um pólitíkina, kennaraverkfallið og bara allt það sem er að gerast í samfélaginu á þeim tíma. Það væri flott ef það væri bara undir svæðinu Tilveran dálkur sem héti deiglan og/eða dálkur sem héti pólitík. Ég er viss um að það færi fram fjörugar umræður þar því það eru margir sem hafa áhuga á því sem er að gerast í samfélaginu og vilja tjá sig um það. Það er bara ekkert svæði núna þar sem hægt er að setja eitthvað niður um þetta efni.
Er ekki einhver sammála mér?