Ég má kannski benda á að plata þeirra ER komin út á Íslandi, fyrir löngu. Þú finnur hana í hillum Skífunnar. Ég er svolítið sammála með þetta með nýju lögin, ágætis lög, en ekkert sem maður getur virkilega svona lifað sig inn í, einfaldlega því maður þekkir ekki lögin og svona. Ég er hinsvegar ekki sammála að þetta hafi verið of hátt stillt, ég heyrði yfirleitt sönginn alveg ágætlega, og orgelið var náttúrlega bara snilld. Væri svalara ef Jon Lord væri þarna, en maður fær víst ekki allt....