Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Réttindarbrot reykingarfólks

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Jújú… en ég vil líka eiga það val að reykja eða ekki reykja. Ég vil ekki að sígarettureyk sé troðið í lungun á mér f tillitslausu reykingarfólki. Reykingafólk: Drullist þið til að sýna tillitsemi, eins og þið segið, það var ykkar val að reykja eða ekki, þess vegna er ekki hægt að kalla ykkur fórnarlömb, þó þið viljið það greinilega.

Re: Réttindarbrot reykingarfólks

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
ibbets: “Málið er að reykingabannið á kaffihúsum og ölstofum kemur því ekkert við hvort að þetta sé skaðlegt eða ekki, það sem menn vilja fá að ráða er, eins og þú sagðir sjálfur ”en getið þið reykt í bílnum ykkar og heima hjá ykkur.“ að eigendur kaffihúsa og ölstofa fái að ráða því sjálfir hvort að staðurinn sé reyklaus eða ekki.” Eins og fanndal sagði, þá eru kaffihús og ölstofur vinnustaðir, og þó ekki sé nema til þess að vernda réttindi starfsmanna, þá þarf þetta bann. Ég þekki dæmi þess...

Re: Davíð Oddson og reykingar.

í Tilveran fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er að hugsa um að hætta að fara í sturtu í uppreisnarskyni við reykingarfólk. Ég ætla líka að hætta að virða nokkurn skapaðan hlut og gerast einræðisherra í uppreisnarskyni við Dabba.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Sleipnir “Þar á meðal Sigurjón Kjartansson svo ekki segja að fjölmiðlarnir séu ekki með neinn áróður gegn þessu frumvarpi, ég er orðinn hundleiður á honum Sigurjóni stundum þegar hann er að gaspra þetta á morgnana.” Ég vil í fyrsta lagi benda á að Skonrokk er ekki auglýst sem fréttarás og Tvíhöfði enn síður fréttaþáttur. Reyndar vil ég endilega viðurkenna að bæði Sigurjón og Jón Gnarr eru hálfgerðir vitleysingar með sífelldan stjórnmála/trúmálaseming í beinni þarna í þessum svonefnda...

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Evdoxus: “…ekki vegna þess að hann hefur kynnt sér frumvarpið til hlítar, heldur vegna þess að fjölmiðlar hafa framkvæmt algeran heilaþvott á íslensku þjóðinni.” Ég vil minna fólk á að Stöð Tvö er ekki eina sjónvarpsrásin sem flytur fréttir, né heldur Bylgjan eina útvarpsrásin. Reyndar ef mér skjátlast ekki er bæði meira hlustað og horft á rásir RÚV, sem er í eigu ríkisins og stjórn að mestu setin af, já, einmitt, sjálfstæðismönnum. “Það vita allir landsmenn, að Davíð er enginn hálfviti. Ef...

Re: Hvað heitir fjárans lagið!?

í Tilveran fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Nosirrah Egroeg með Lokbrá, getur fundið það á rokk.is

—————- Bara bull, bara lag…

Re: STEF : Svívirðing ?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Gerum okkur nú að ég skrifi geisladisk með tónlist, sem að sjálfsögðu geri ég aldrei. Þá myndi ég nærri aldrei skrifa íslenska tónlist, og ég held að hún sé í miklum minnihluta þeirrar tónlistar sem skrifuð er. Þess vegna er bara bull að við þurfum að borga fyrir hvern skrifanlegan disk, og það okurverð. Þar að auki var nú metár í plötusölu á Íslandi 2003 eða 2004 ef ég man rétt. Ennfremur er STEF í raun að viðurkenna að það að skrifa tónlist sé lögmætt með því að láta okkur borga fyrir það....

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Forsetaembættið sem slíkt er ópólitískt, alveg óháð því hvort sá maður sem því embætti gegnir sé pólitískur eða ekki. Það var nú verið að kvarta hérna yfir því að hann vildi ekki taka alvöru afstöðu. Mér finnst nú að þið ættuð að reyna að halda ykkur við rök sem ekki stangast hver á við önnur. Og hann hefur EKKI neitunarvald. Neitunarvaldið liggur hjá þjóðinni. Þannig er það. Ég skil ekki hvernig í ósköpunum þið getið leyft ykkur að segja að þetta sé neitunarvald en ekki málskotsréttur....

Re: Lupin

í Tilveran fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er svolítið sammála…(ekki séð myndina samt) En þetta er hinsvegar snilldar leikari.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: heit samloka á la ég

í Matargerð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Je… Hefurðu íhugað að gera samning við Sóma?

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Forseti Íslands er ópólitískur og á því einmitt EKKI að taka “alvöru afstöðu”. Sé hann að gera þetta vegna þess að það eru að koma kosningar er það náttúrulega allt í lagi líka. Hann gerir starf sitt sem best svo að hann eigi sem mestan möguleika á að vera endurkjörinn og halda starfi sínu. Hafi hann meiri möguleika á kjöri núna hlýtur það að þýða að hann sé að gera vilja þjóðar og þar með að gera það sem þarf að gera.

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég var að rekast á grein á forsíðu Fréttablaðsins. Þar segir að stjórnarflokkarnir vilji afnema ákvæðið um málskotsrétt forseta. Er eitthvað að fólki! Ef þetta gengur í gegn missir forseti eitt stærsta hlutverk sitt sem hluti af löggjafarvaldi. Þeir þykjast vera að staðfesta það að það sé þingræði á Íslandi. Það er rugl, þingræði þýðir einfaldlega það að ríkisstjórn sé komin undir stuðningi þings og ekkert annað. Hér er skýring beint upp úr orðabók: Þingræði; stjórnarfyrirkomulag sem gerir...

Re: ruglið um reykingar...

í Deiglan fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Málið er að ef að yfirvaldið gerir það ekki er nokkuð öruggt að rekendur skemmtistaðanna gera það ekki….

Re: Ákvörðun forseta um staðfestingu fjölmiðlalaga

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Mér finnst alveg ótrúlegt að fólk geti leyft sér að segja að forsetinn geti ekki nýtt sér stjórnarskrárbundinn málskotsrétt sinn. Þingmenn eiga að gegna því hlutverki að vera fulltrúar þjóðar í löggjafarvaldinu. Þingmenn eiga í raun að vera úrtak úr þjóðinni til að geta kosið um hvaða lög skuli samþykkt. Þegar forseti verður var við að þingmenn séu að bregðast hlutverki sínu sem fulltrúar þjóðarinnar getur hann skotið málinu til ákvörðunar þjóðarinnar sem slíkrar. Það að þjóðin fái að kjósa...

Re: Nylon!

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Amm… held hún hafi verið teiknuð af einhverjum misheppnuðum mangateiknara.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Nylon!

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Tekið af Concert.is: 'Í dag voru stelpurnar í 8. sæti með “Lög unga fólksins”' Ég hugsa að þetta sé rétt, þar sem Concert er með þetta heila rugl. Btw, er ég sá eini sem finnst þessi hljómsveit bara brandari?

—————- Bara bull, bara lag…

Re: G-Unit að koma til landsins!

í Hip hop fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Úff… hrikalega leiðinlegt þetta gangsta rapp. 50 cent er að mínu mati eiginlega bara botninn, sá rappari sem ég þoli síst af öllum. Textarnir allir um þetta helvítis hundleiða efni, gullkeðjur og kellingar. Rapp getur alveg verið ágætt, en þar sem það byggist á textanum finnst mér nú alveg vital að textinn sé eitthvað sniðugt. T.d. hækkaði Eminem mikið í áliti hjá mér þegar ég hlustaði á “White America”.

Re: Fjölmiðlafrumvarpið : samþykkt

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Stutt og laggott: Á móti!

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Ef RÚV drullaðist til að hafa góða dagsskrá!

í Deiglan fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það er nú eitthvað við þulina/þulurnar á RÚV sem gerir mann þunglyndan bara við að hlusta á. “…en nú er komið að Franskri þáttaröð um einstæða móður í París sem berst við byrðar þess að kunna ekki að lesa” Bjöggi aftur á móti er bara kúl.

Re: Ef RÚV drullaðist til að hafa góða dagsskrá!

í Deiglan fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ja… Mér finnst fordómar gagnvart RÚV stundum svolítið yfirdrifnir. Hitt er annað mál að þeir mættu sýna eitthvað nýtt efni aðeins oftar, og kannski gera svolítið af því að taka inn eitthvað heilalaust afþreyingarefni. Þegar maður sest niður klukkan 8-9 að kvöldi við sjónvarpið vill maður ekki horfa á einhverja leiðinlega fræðslumynd frá Frakklandi, maður vill heldur ekki horfa á einhverja mynd frá fornöld um örlög krókódílabarnanna á Borneó(sem hljómar mjög týpískt fyrir einhverja disneymynd...

Re: Mandólín

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það mætti nú nefna ýmislegt fleira, m.a. finnst mér ómissandi að nefna að nærri undantekningalaust er mandólinið með fjóra tvöfalda strengi (8 strengi).

Re: Forsetinn sagður vanhæfur

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Reyndar sé ég ekki hvernig í ósköpunum forsetinn á að geta verið vanhæfur til að beina þessu að þjóðinni, varla er hún hlutdræg í heild sinni. Hann er ekki raunverulega að henda málinu bara burt, en ef hann sér þann kost vænstan að neita að skrifa undir lögin finnst honum málið greinilega það tæpt að vissara sé að beina því til þjóðarinnar að samþykkja eða samþykkja ekki lögin. Nú, fyrst við erum almennt að tala um vanhæfni forsetaembættis til einna eða annarra verka má nú kannski nefna mál...

Re: Sauðakrókur er skítapleis

í Hip hop fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Einmitt… alveg eins og allir elska Leoncie og Árna Johnsen.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Bandaríkja maðurinn drepinn

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Lík mannsins var fundið við þjóðveg nærri Bagdad… held ekki að það sé feik, þetta var allt í mogganum eða fréttablaðinu eða bæði eða whatever.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Erfiðasta hljóðfærið?

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hmm… alfarið ósammála. Gítar er svo opið hljóðfæri að það er ómögulegt annað en að þurfa að æfa sig í mismunandi notkun tóna. Ég hef æft í um 2 ár á gítar og það eru mörg hljóð sem ég næ illa eða engan veginn úr gítarnum mínum. Þú heyrir auðveldlega muninn á misgóðum gítarleikurum við nærri allar laglínur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok