Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Sigur rós - Ágætis Byrjun

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Heilasta og þéttasta plata Sigur Rósar að mínu mati. Ég frábið mér vinsamlegast að velja eitt besta lagið, það finnst mér ógerlegt með öllu.

Re: Dauðinn í tísku?

í Tilveran fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Fyrst var rokkið. Svo var gamla rokkið ekki lengur nógu spennandi og villt svo að anarkistarnir komu með pönkið. Eftir svolítinn tíma varð það leitt og þá kom grungið. Svo dó Cobain og fólk vissi ekkert hvað það ætti af sér að gera og tók að sér gothið, misheppnaða tilraun til að halda uppreisnarandanum lifandi.

Re: Dauðinn í tísku?

í Tilveran fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta er alveg rétt. Einhverjar 14 ára stelpur sem tala um hvað lífið er ömurlegt því að þær þurfa að taka til í herberginu sínu og fara í skóla er ekki bara fáránlega heimskulegt og niðrandi fyrir þær sjálfar, heldur gerir lítið úr fólki sem raunverulega er þunglynt og á við vandamál að stríða. Þetta er eitthvað svona fjöldaþunglyndi sem hrjáir 12-15 ára stúlkur núna.

Re: Hvað gerir grunnskólakennari?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Já, þetta er kannski held ég helst upptalning á því sem kennarar í yngri deildum gera, og er nóg um. En ég skal segja ykkur að ég myndi enn síður vilja vera að kenna í unglingadeild en yngri börnum.

Re: Alvöru greindarvísitölupróf?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
afsakið, þegar ég segi ‘…hvernig þú myndir komast af í “greindartengdu” prófi’ meina ég að sjálfsögðu námi eða starfi en ekki prófi.

Re: Kynþáttahatur :@

í Tilveran fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég held hann sé að tala um vitleysingana sem kjósa sér að nota sér það ritmál sem oft viðgengst á netinu og helst MSN í daglegu ritmáli, t.d. skomm, gegt, lol, omg, rofl eða annað slíkt fólk.is/MSN soramál. Ekki þar með sagt að allir skrifi þannig á fólk.is eða MSN, en það viðgengst mikið.

Re: Alvöru greindarvísitölupróf?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ja… greindarpróf eru meira en bara rugl. Þau mæla einn þátt greindar, þó að sjálfsögðu sé mannshugurinn byggður upp af mun fleiri en einni greindartegund. Þú getur alveg eins sagt að Íslenskupróf segi ekkert til um raunverulega greind, þar sem greind sé svo fjölþætt, en það getur samt sagt fólki hvort viðkomandi sé hæfur í íslensku. Þar með hvort að þú eigir framtíð fyrir þér í íslenskutengdu námi eða starfi.(Ekki svo að segja að greindarpróf segi til um hvernig þú myndir komast af í...

Re: Bloggið mitt

í Blogg fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það er rosalegur kostur ef maður vill setja saman sína eigin bloggsíðu að maður hafi eitthvað vit á því sem maður er að gera…

Re: Nýji Hugi

í Tilveran fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fullkomlega sammála… Könnunin á forsíðunni sýnir líka greinilega að 55% notenda fannst gamli hugi hreint og klárt betri.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 8 mánuðum

Re: 50 Cent og boðskapur gangster rappsins

í Músík almennt fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mig langar reyndar að benda öllum á að Rokk hefur frá árdögum snúist að miklu leyti um uppreisn og að slíta sig frá norminu. T.d. var pönk á sínum tíma mikið tengt anarkistum sem eins og allir ættu að vita er uppreisnarfólk í sínum dýpstu öfgum. Bítlarnir voru líka ótrúlega mikið uppreisnartákn, jafnvel meira en fólk gerir sér grein fyrir. Þar fyrir utan voru hippar líka mestu uppreisnarseggir síns tíma og stærsta rokkhátíð allra tíma er órjúfanlegur hluti hippatímabilsins, þ.e. Woodstock...

Re: 50 Cent og boðskapur gangster rappsins

í Músík almennt fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Dyrlingur: “Ef þú setur rokk og rapp hlið við hlið, Hvor textanir hafa meiri vit?” Pink Floyd - “Another Brick in the wall” Pink Floyd - “Money” Pink Floyd - “Comfortably Numb” Bítlarnir - Flest lögin, í það minnsta á seinni plötum þeirra, eru með óvenjulega texta og oftar en ekki með einhvers konar ádeilu. Oft eru rokktextar bara rugl og vitleysa og svolítil endurtekning, en fyrir mér hljómar nú hver einasti rapptexti hjá röppurum eins og 50cent og DMX nákvæmlega eins. Eminem er þó t.d....

Re: Val á menntaskólum

í Skóli fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Það sem ég held að sillymoo sé að reyna að koma á framfæri sé það að velji maður skóla eftir sínum áhugamálum og sterku hliðum er líklegt að maður lendi í skóla með fólki sem hefur áhuga á svipuðum hlutum og þú og líkt þér í öðru. Því ætti ekki að vera erfitt að koma sér upp traustum vinahópi þar sem maður fer. Ég er t.d. að byrja í menntó í haust og munaði litlu að ég færi í MH, að miklu leyti því vinir mínir fóru þangað. Svo henti ég bara frá mér þeirri hugsun og valdi MR og hingað til hef...

Re: hvað á maður að gera..?

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Bara vesen maður - Sambönd eru vesen og sambandsslit líka, en þó þú getir ekki gleymt honum eins og ekkert sé skaltu frekar hætta með honum fyrr en síðar. Það eru alltaf einhver sárindi við sambandsslit en það hljómar ekki fyrir mér eins og þetta samband geti enst mikið hvort sem er, og ef það gerir það verður það sennilega bara algert rugl. Einar Axel

Re: Til hamingju nagi

í Gullöldin fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Það sem mér fannst að við LPinn var það að mér fannst hann frekar eiga heima á hljóðfæraáhugamálinu eða eitthvað þannig. Ég kaus nagi, allavega í final 2, man ekki alveg hvern ég kaus í final 5.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Fólk sem

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Jæja - Gothic tískan er ekki mitt thing, ég aðhyllist hana ekki, og yfirleitt fer fólk sem tilheyrir þessum hópi í taugarnar á mér, en það fer líka ótrúlega margt í taugarnar á mér, svo að það er kannski ekki alveg að marka. Ég heyri sjaldan eitthvað nöldur í þessu liði, kannski bara vegna þess að ég umgengst það ekki mikið. Allavega á opinberum vettvangi hef ég ekki orðið mikið var við að þetta lið sé að kvarta. Ég hef hins vegar meira orðið var við að allir aðrir hópar, almennir rokkarar,...

Re: Aðstaða blaðbera

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Já, stundum verður maður bara að hefja upp raustina sjálfur ef enginn gerir það fyrir mann.

Re: Aðstaða blaðbera

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ah - Að vakna… Það er alveg sér kapítuli í gallabók blaðberastarfsins.

Re: Aðstaða blaðbera

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Já, maður fær nefnilega ekkert meira borgað fyrir 2mín á hvert blað heldur en 2 sek á hvert blað. Reyndar hef ég persónulega ekki lent mikið í þröngum lúgum, kannski því ég er mikið að bera út í nýjum hverfum upp á síðkastið, lenti samt meira í þessu fyrr, líka kominn aðeins upp á lagið með þetta. Það ætti bara að setja einhverjar byggingarreglugerðir sem að gera ráð fyrir blaðberum. Helst ætti bara að gera eins og í öllum bandarísku fjölskyldumyndunum að hafa póstkassa við gangstéttina, það...

Re: Lúxussalur smárabíós

í Tilveran fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Bara hafa 3ja mánaða vist á betrunarhæli fyrir fíflalæti, 6 fyrir hringjandi síma. (Að sjálfsögðu bara fangelsisvist fyrir fullorðið fólk)

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Aðstaða blaðbera

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
I hear you my brother! ps. Að sjálfsögðu á þetta að vera “eins og unglingA er von og vísa”, biðst forláts á mögulegum tauga- og hjartaáföllum sem þetta litla atvik hefur valdið.

Re: Davíð velkominn í kjöltu Bush

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ja…. reyndar séð frá fremur kaldranalegum sjónarhóli verða oft miklar framfarir á stríðstímum. T.d. varð þotan til í heimsstyrjöldinni seinni. Þess utan var seinni heimsstyrjöldin líka mikill uppgangstími fyrir Ísland, margt sem við höfum núna hefðum við aldrei ef ekki væri fyrir hernám Breta og svo setu BNA á Íslandi, sbr. Marshall aðstoðin o.fl.

Re: Davíð velkominn í kjöltu Bush

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Finnst engum þetta svolítið skrýtið? Að þetta stærsta veldi heims kjósi að virða að vettugi tilmæli Sameinuðu Þjóðanna, að sýna slíkt fordæmi er að sjálfsögðu óafsakanlegt, og fyrir það eitt er stjórn Bandaríkjana ávítanleg með meiru. Nú síðast kjósa svo Ísraelar að fylgja þessu fordæmi með því að neita að taka niður þennan margumtalaða múr, þrátt fyrir ályktun SÞ. Ég er hræddur um að með þessu hafi Bandaríkjamenn stigið hættulegt skref í átt að því að SÞ missi völd að miklu leyti. Það grein...

Re: VÁ GMG

í Tilveran fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Þá er nú líka óþarfi að semja svona margar greinar á það.

—————- Bara bull, bara lag…

Re: Hver er ég ?

í Heimspeki fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Mitt álit er það að sé fólk of meðvitað um sjálft sig verði það leiðinlegra fyrir vikið. Hvort sem manneskju finnst hún sjálf alveg ótrúlega frábær(sem henni má finnast, ef það er ekki alltaf hugsun#1 hjá henni), eða ótrúlega leiðinleg verður hún svolítið leiðinlegri í umgengni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok