Hvað er það með grænfriðunga? það er eins og það megi ekki drepa einn hval þá eru þeir farnir að grenja yfir því! Hvalir hafa verið veiddir frá örófi alda og ég sé bara ekkert að því. Og síðan vilja þeir, grænfriðungar, ekkert gera við því að það sé verið að drepa fólk út um allt, eins og í Írak og öðrum arabalöndum! Í grein á www.mbl.is (7.6.2004) kom fram að grænfriðungar höfðu sett frosinn, dauðan höfrung í ís fyrir utan umhverfisráðuneytið í London. HALLÓ!? GRÆNFRIÐUNGAR settu DAUÐAN HÖFRUNG fyrir framan úmhverfisráðuneytið! Hver var að drepa hvern!?!? Og svo má ekki heldur nú orðið bora eftir olíu í sjónum, vegna þess að grænfriðungar vilja láta banna það, vegna hættu á mengun. Nei, það er bara orðið þannig í dag að allt þyki svo sjálfsagt. Grænfriðungar neita olíu og mat, þá mega þeir bara lifa án olíu og matar! Og þetta með að þeir ætli að stofna “greenpeace” stofnun hér á landi, VERY FUNNY!

Hvað finnst ykkur um þetta?