Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég er að segja að það er ekki alveg rétt að segja að hinar tíðirnar séu ekki til lengur. En annars er ég ekki alveg viss hverju ég er að reyna að að koma á framfæri. Kannski ég ætti að stökkva upp í Himalajafjöll og hugsa minn gang í einrúmi.

Re: Skák Er ekki ÍþróTT!!!!

í Skátar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þá segi ég nú bara: “Skátar eru ekki fólk” Ég má líka benda á að þeim sem finnst skák ekki íþrótt eru þeir sem eru lélegir í skák, ekki þeir sem stunda aðrar íþróttir. Svo er það líka bara skilgreiningaratriði hvað maður kallar íþrótt eða ekki. Varstu kannski að tapa í skák fyrir litlu systur þinni?

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
að sjálfsögðu á fyrri heimsstyrjöld þarna að vera seinni heimsstyrjöld.

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég held reyndar að þú ættir að kynna þér forsögu Ísraelsríkis aðeins betur. Á fyrri hluta liðinnar aldar færðist það stöðugt í vöxt að gyðingar keyptu sér land af svæðinu sem er og var Palestína. Hins vegar vildu Palestínumenn ekki alltaf selja landið, og þá gripu gyðingar til þess ráðs að hrekja þá af landinu með vafasömum ráðum eins og morðum og ofsóknum. Þarna urðu til stórir hópar af því sem væri réttast að kalla hryðjuverkamenn og glæpamenn sem beittu sér sérstaklega í því að hrekja...

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Segjum að þú byggir hús á landi sem þú kaupir. Eftir að búa þar í svona 20 ár kemur náungi og segir þér að afi hans hafi búið á þessu landi fyrir 100 árum síðan, en hrakist burt af völdum… Guð má vita hvers. Fyndist þér réttlátt að hann gerði kröfu til 10-20% af þessu landi, þar sem afi hans var nú hrakinn þaðan burt?

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hvaða alþjóðalög ertu að tala um vinurinn? Ef ég man rétt eru Ísraelar t.d. að brjóta gegn ályktun SÞ með þessum múr sínum. Ísraelar hafa brotið miklu fleiri lög heldur en Palestínumenn. Sérstaklega þar sem hernaður Ísraela er allur opinber í nafni ríkisins. Hernaður Palestínumanna er nær undantekningalaust skærur og hryðjuverkamenn og því í raun engir nema einstaklingar að brjóta lög. 3 Palestínumenn láta lífið í stríðinu fyrir hvern Ísraelsmann sem deyr.

Re: Kurt Cobain, lifandi guð!

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Nei… Í sjálfu sér gerir það greinina ekkert verri, en heppilegri titill væri t.d. “Kurt Cobain, guð í lifandi lífi”

Re: Kurt Cobain, lifandi guð!

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Fyrst langar mig nú að segja að mér finnst fyrirsögnin svolítið illa hugsuð. Kurt Cobain hefur nefnilega ekki verið lifandi síðustu 10 árin eða svo. Hmm, óháð því hvort hann hafði áhrif á tónlistarsöguna, þá hafði hann svo sannarlega áhrif á netheima. Það er ekki þverfótað fyrir þessum greinum á huga. En annars held ég að það sé eiginlega ekki hægt að neita því að Nirvana hafði mikil áhrif á tónlistarsöguna, annað væri kjánaskapur. Bara það hvað margar greinar á huga hafa verið tileinkaðar...

Re: Hvaða forrit nota hljómsveitir á tónleikum?

í Raftónlist fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Reason gagnast ekki mikið sem upptökuforrit, en það er mjög skemmtilegt til lagasmíða á tölvuna. Það er svolítið flóknara en FruityLoops, en býður líka upp á miklu meiri möguleika.

Re: 14 ára krakkar

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þú ert greinilega með fordóma gegn öðrum 14 ára krökkum sjálf. Þú segir að svona líti fólk á 14 ára krakka, en þú sért alls ekki eins og aðrir fjórtán ára krakkar, og þar með ertu að gefa í skyn að þú trúir sjálf á steríótýpuna.

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þessar tvær eru aðaltíðirnar. Þátíð og Nútíð. Hinar tíðirnar eru svo kallaðar samsettar tíðir og heyra alltaf til annað hvort þátíðar eða nútíðar. Ég gæti reyndar ekki talið upp allar tíðirnar með nöfnum eftir minni en þær eru enn í mikið notuðum skólabókum í dag og eru notaðar í almennu máli.

Re: Fordómar gegn brúnku

í Tilveran fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Já, höldum í hinn fagra hvíta kynstofn. 24h tölvunördar leggja eru að leggja sitt af mörkum fyrir málstaðinn til að halda húðlitnum fallega mjólkurhvítum. Næst á dagskrá er að útrýma Verzló og gera útlendinga útlæga. Þú ert nú meiri vitleysingurinn…

Re: Fordómar gegn brúnku

í Tilveran fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég er eini venjulega þenkjandi maðurinn í heiminum. Allir aðrir eru viðurstyggilegir ranghyggjumenn. Ég hata alla aðra og ætla að fara að hugsa mínar einstöku og eðlilegu hugsanir.

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í fyrsta lagi skrifaði hann framúrstefnulega, þ.e. á mjög nýtískulegu máli miðað við hans tíma (reyndar átti málið ekki eftir að þróast í einmitt þá átt, en það er annað mál). Hann er eini Íslendingurinn sem nokkurn tímann hefur hlotið Nóbelsverðlaun, og því sterk rök fyrir því að hann hafi verið mjög klár, og kunnað vel á málið. Að vera mikið á móti hans máli er á vissan hátt málfræðilegt afturhald. Það að reyna að taka aftur upp fyrnt mál, einkennist líka af afturhaldi. Að segja að hans...

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Já, varðandi vandað mál, án tillits til forn- eða nútímaíslensku. Á yfirborðinu lítur ungt fólk niður á aðra, sérstaklega jafnaldra. sem tala og skrifa í vönduðu máli. Þetta lýsir sér í flissum og öðru slíku. Það hins vegar hverfur eftir því sem fólkið í kringum þig venst því, og þó þetta sé við lýði á 14 ára aldrinum er þetta strax farið að snúast mikið við snemma á menntaskólaaldri. Þá er litið upp til þeirra sem kunna að beita tungumálinu fyrir sig á réttan og virðulegan hátt. Þess vegna...

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Og hinn helmingurinn, þá væri rétt að segja að e-ð gerist við e-ð/e-n.

Re: Fordómar gegn fornri íslensku,algengt eður ei?

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tvenns konar málvenjutíska hefur þróast hjá svona 13-15 unglingum. Annars vegar er sú algengari sem byggist í fyrsta lagi á því að nota mikið af styttingum og skrifa orð í ritmáli eins og þau eru töluð. Týpískt dæmi um þetta væri t.d: “So fór ég sko geggt skomm til paba og bara omg…” Þessi málvenja einkennist líka oft af mörgum villum. Hin, sem fer jafnvel meira í taugarnar á mér, er þegar reynt er að tala einhvers konar forníslensku. Þessar tilraunir eru oft í meira lagi afkáralegar, og...

Re: Hip Hop er að Deyja út???

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Orðaforðinn hlýtur að vera að bregðast mér, því að ég vissi ekki að orðið “síðustu” gæti verið lagt að jöfnu við orðið “tíu”.

Re: Hip Hop er að Deyja út???

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Og fleira í sama tóni. Íslensk tónlist er ekki frumleg. Íslendingar gera og hafa alltaf gert svolítið mikið af því að taka einhvers konar annars flokks tónlist sem þegar hefur gengið hjá í flestum löndum og markaðssett hér á landi. Þetta á mikið við um íslenska rappara sem nú hafa staðið alveg rosalega mikið í stað síðustu ár. The Darkness bjargaði ekki rokkinu. Þeir eru ágætir fyrir það sem þeir eru, en í dag er rokkið búið að þróast í eitthvað annað, kannski til hins verra, kannski til...

Re: Hip Hop er að Deyja út???

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tónlist þróast. HipHop hefur þróast í tvær (nú, eða fleiri, ég fylgist ekki svo vel með hip-hopi) áttir. Þar er annars vegar hnakka-hip-hopið, þ.e. G-Unit, kannski fleira. Reyndar eru líka nokkrir ágætis rapparar sem tilheyra þessari undirstefnu. Allavega VAR Eminem ágætur, en ég fullyrði ekkert um hann núna. Hins vegar er svo það sem varð undir og er því núna undirheimatónlist. Tékkaðu t.d. á Bandarísku hljómsveitinni Clouddead. Þeir eru skemmtilegur nýr straumur. Það sem þú þarft að gera...

Re: 14 ára krakkar

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég verð nú að viðurkenna að þegar ég var fjórtán ára skildi ég svona nokkurn veginn hvers vegna fólk hafði fordóma fyrir 12-14 ára krökkum. Greinarsvörin við þessari grein sýna glögglega hvers vegna. Að sjálfsögðu er ekki hægt að draga alla í dilka svo auðveldlega, en það besta fyrir þig er kannski bara að láta fordómana sem vind um eyru þjóta. Þið vitleysingar sem skrifið svörin sem ég er að tala um: Síðast þegar ég vissi snýst það að lifa lífinu ekki um að vera lélegur í stafsetningu og...

Re: Furðulegar kröfur kennara.

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Líklega svo að við lærum að vara okkur á orðum viðkomandi í framtíðinni…

Re: Furðulegar kröfur kennara.

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Góði, ekki vera með svona miklar alhæfingar hérna. Grunnskólakennarar hafa einu sinni áður í Íslandssögunni farið í verkfall. Svo reyndar fóru allir ríkisstarfsmenn í verkfall 84, en það er annað mál.

Re: Furðulegar kröfur kennara.

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég bara vissi ekki að þeir væru í umræðunni í augnablikinu…(iðnnemar)

Re: Furðulegar kröfur kennara.

í Deiglan fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Já, þér langar til þess segirðu? Í fyrsta lagi má ég kannski benda á að þessar 215.000 krónur eru að sjálfsögðu brúttótekjur, og þar með er það sem fer í vasa kennarans aðeins rúm 60% af þessum peningi. Í öðru lagi má minnast á að meðallaun fólks með kennararéttindi eru lægri heldur en meðallaun fólks sem er aðeins með stúdentspróf. Enn jafn öfundsvert? Ef þið þekkið jafn marga kennara jafn náið og ég (og það ætti reyndar ekki að þurfa mikið meira en að líta á hvern þann bekk sem þið...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok