Ég hef nú oftar en einu sinni heyrt Guns N'Roses lög spiluð á FM957. Ég hef líka heyrt Nirvana, Korn og Rammstein á FM957, þó að þessar sveitir hafi meira færst yfir á Xið eftir að það kom til sögunnar. Mínus er meinstrím (svo ég noti svona góða stafsetningu), ég neita því ekki, en hvað er meinstrím? Meinstrím er tónlist, eða hvað sem við á, sem nær til stórs hóps fólks. Allar ofangreindar hljómsveitir voru meinstrím á sínum tíma, sumar eru það enn. Underground hljómsveitir eru þær sem...