Ég var einu sinn í reiðtúr með mömmu þegar ég var yngri. Ég var á honum Fána sem var besti hesturinn okkar þá. Við ákváðum að fara inní Villingadal sem er einn fallegasti dalurinn sem ég veit um, Alla vega, þá var nýbúið að troða einhverjum kamri rétt við veginn, en það var pínulítið tjaldstæði efst í dalnum. Ég reið bara eftir veginum eins og ég hafði alltaf gert, svo þegar við nálguðumst kamarinn, þá flaug allt í einu fugl út úr kamrinum og Fána brá svo að hann stökk örugglega 2 metra til...