Ég er ein af þeim sem hef eitthvað að gera yfir daginn, eins og það að vera í vinnu eða þá í skólanum! Það er þessvegna sem mér finnst alveg æðislegt að það skuli vera sýndur vikuskammtur af þessu um helgar á stöð2! Það er ekki sjens að ég gæti horft á þetta á hverjum degi nema að þættirnir væru sýndir seinna um daginn! Það er s.s. frekar leiðinlegt ef maður missir af þáttunum um helgar! Er einhver hér sem að tekur upp alla þættina? Ég er að hugsa um að byrja gera það, þó ég komi ekki til með að horfa á þetta allt saman aftur þá held ég að fólk sem missir af þessu gæti orðið frekar þakklátt!
Það virðist vera þannig með þessa þætti að maður verður svona hálf háður þeim þótt svo að maður vilji ekki viður kenna það ;).
Endilega leyfið fólki að heira ykkar reynslu af þessu og hvort þið mynduð vilja að Neighbours yrði sýndur á öðrum tíma

Kv.mydog8me
-=ég er þessi þögla týpa…..nema þegar ég tala=-