Lou, Joel og Steph fundu Bob og Harvey í þættinum í dag en það var víst bara einhver karl útí bæ sem hafði stolið þeim. Hann ætlaði að selja þá og setti auglýsingu í blaðið og þannig komust þau á sporið.

Steph fékk svo bréf frá einhverjum þar sem stóð að hún ætti eftir að átta sig á þessu með peningana þegar öll upphæðin hefði verið löggð inná reikninginn en það stóð ekkert frá hverjum bréfið var.

Joel og Paul voru bara að spjalla og svo að skokka og spjalla um stelpur, Ég held að Joel sé enn hrifinn af Dee.

Maggie gleymdi að láta eitthvað skjal fylgja einhverju prófi, þannig að ef hún skilar því ekki, fellur hún. Og hún var einnig að tala um við Leo að hann ætti að finna sér vini á sínum aldri, En hann vill bara skipta um skóla.

Réttarhöldunum hjá Lou og John Allen var flýtt og telur Lou að hann muni vinna en John vildi að þeir myndi báðir biðja um frest en Lou vildi ekki fallast á það.

Held að ekkert meira hafi gerst í þættinum í dag, var ekkert sérstaklega spennandi þáttur, en njótið samt vel :)