Það er vonandi ekki oft sem þið dettið af baki, en það væri gaman að fá að heyra fyndnar sögur… eða er það ekki?

Best að ég byrji bara; ég var einu sinni, held ég hafi verið 12 ára, að fara í útreiðartúr og var yngri frændi minn með mér. Ég ákvað að vera ofsalega dugleg og teyma með mér hryssu sem þurfti sko nauðsynlega á hryfingu að halda. Sjálf var ég á hesti sem hafði ofsalega gaman af því að hlaupa- HEIM! Ég lagði bara af stað í “gúddí fíling”, hryssan teymdist ágætlega fyrstu 10 metrana en fór svo að láta draga sig, ömurlegt. Eftir að hafa dregið hana 100 metra ákvað ég að fara bara með hana aftur heim, þó maður eigi náttla ekki að gefa sig. Þegar ég sneri hestinum við sem ég var á, tók hann sig til og tætti af stað, nema hvað, hryssan stóð sem fastast og allt gerðist svo hratt að ég náði ekki að sleppa henni og kipptist af baki…. annað ístaðið þeyttist út í skurð og annar skórinn minn flaug eitthvert í burtu! eftir sat ég, SKELLIHLÆJANDI á veginum, og ekki hló nú frændi minn minna… sem betur fer slasaðist ég nú ekkert, en ég dó nánast úr hlátri…
_________________________________________________