Í þættinum í dag fengu Lyn og Joe að sjá Woody og þau trúðu ekki að hann væri á lífi og voru eiginlega hálf reið yfir því að hann hafi látið Steph ganga í gegnum þetta allt og ekkert látið í sér heyra. Hann bað hana svo um að giftast sér en hún svaraði ekki í þessum þætti, kannski á morgun.

Libby náði að hringja í Susan úr gemsanum og sagði henni að hringja í pabba Drew og láta þá vita hvar hún væri. Þeir fundu hana svo og hún var flutt með sjúkraþyrlu á spítala og þar fæddi hún heilbrigðan strák, en það gafst ekki tími til þess að fara með hana á skurðstofuna til þess að framkvæma keisaraskurðinn svo hún varð að fæða barnið. Það gekk allt í lagi en svo datt hún útaf og hjartað hætti að slá og allt í pati, læknarnir fóru að hefja hjartahnoð og gefa henni svona stuð og þannig endaði þátturinn held ég. Endaði alla vega í miðri “björgun” en ég vona að þeir nái að bjarga henni og hún lifi.

Elly, frænka Susan sem er held ég 15 eða 16 ára er komin til þeirra til þess að vera í um 1/2 ár vegna þess að mamma hennar er í Prag að vinna, en Elly veit ekki að hún eigi að vera svona lengi, heldur að hún eigi að vera í viku til tvær vikur. En hún er svona algjör “gella”, lítur út fyrir að vera vandræðaunglingur!! Það á eftir að vera fjör á bænum með hana!!!