Lou missti forræðið yfir lolly svo hann stakk af með hana daginn áður en hún átti að fara að flytja til John Allen. Hann fór bara og keyrði eitthvað með hana og gisti sennilega á einhverju vegahóteli. Joe og Harold fóru að leita að honum og fundu hann en Lou vildi ekki fara heim.

Emily átti afmæli og fékk hún the Wiggles(einhver hljómsveit) í heimsókn og Flick var þarna að dansa með Emily. Matt tók fullt af myndum af þeim (Flick!!!). Hann er pottþétt hrifinn af henni.

Matt var líka að æfa sig fyrir einhverja barþjóna keppni og þurfti hann að stoppa slagsmál, bera bakka með bjórglösum og taka ekki pichup línur alvarlega. En svo hélt Matt á bakkanum og Flick spurði hann hvort hann vildi koma heim til sín eftir vinnu, og hann sagði auðvitað já, en þá var hún bara að testa hann og var þetta jú pickup línan. Svo kleip hún eitthvað í hann og hann missti náttúrulega allan bakkann með glösunum.

Svo var Dee í klippingu hjá Lyn og vildi hún að Lyn myndi breyta sér, gera eitthvað allt öðruvísi við hárið á henni. Það verður gaman að sjá hvort síða hárið fái að fjúka eða hvort hún haldi því.