Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bal134
bal134 Notandi frá fornöld 41 ára karlmaður
68 stig

Re: Hvað er eiginlega með stjórnendurnar hér?

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ertu að segja að stjórnendurnir séu rasistar og að þess vegna hafi myndirnar ekki komið inn? Simon

Re: Bjór er góður og áhrifin eru snilld :)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú þarft nú að vera ansi vel stæður til að geta leyft þér að sötra bjór á hverjum degi hér á klakanum. Held nú að svo (for)dómar um fólk sem fær sér bjór oftar en nágrannin hljóti að fara að minnka, það er jú ekki svo langt frá því að bjórinn var bannaður Verð samt að vera ósammála þér í einu, bragðið er betra en áhrifin! Simon “alki”

Re: Samburu og Boran

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mér fannst alveg langbest þegar ein stelpan í samburu var að kommenta í myndavélina um klíkuskapinn og þetta var allt eitthvað svona “we were just havin fun” og “this is like hangin out with friends” Hún var svo hissa að fólkið væri að leggaja eitthvað á sig til að vinna milljón $ Dó úr hlátri

Re: Rasismi BNA manna

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Væri Jay Leno rasisti ef hann gerði grín að gyðingum? …bara að pæla Simon

Re: Um upphaf Seinni heimsstyrjaldar

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Fín grein tholli. Mér finnst alltaf jafnmerkilegt þegar ég skoða myndir af þýsku fólki á millistríðsárunum fara með hjólböruhlass af peningum til að kaupa sér brauð! Hvaða nýlendur áttu Þjóðverjar fyrir www1?

Re: Þetta er bara bull

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Að vera ísraeli þarf ekki endilega að þýða að þú sért gyðingur. Geturu útskýrt muninn á ísraela og ísraelsmanni? Því fyrir mér virka þetta eins og tvö orð um sama hlutinn. Hvað ertu að tala um?

Re: Móðurmenning Jarðar - Evrópa

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Góðar pælingar. Ég var einhvern tíman að horfa þátt á Discovery channel sem fjallaði um fólk sem var afbrigðilega hávaxið. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar þátturinn fór að snúast um stórvaxnar geimverur sem höfðu átt að eiga hér blómlega menningu. Meðal annars var bent á steinristur frá Mesópótamíu með mynd af “manni” hneygja sig fyrir “öðrum manni” í hásæti. Það sem þeir voru að benda á var að ef maðurinn í hásætinu stæði upp væri hann 50% hærri heldur en sá sem var að hneigja sig....

Þetta er bara bull

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
nuff: Það segir ekki neitt þó Ísraelar hefi búið þarna fyrir árþúsundum. Það bjuggu pottþétt einhverjir aðrir en gyðingar þarna þar áður. loop loop loop peace4all þér virðist ekki vera að ganga neitt vel að sannfæra okkur (tjah flest) um að gyðingar eigi samúð skilda. Bara til að þú vitir það eru 99% hugara félagar í FÍÞ eða öðrum félögum byggðum á rasisma. Eins og aðrir rasistar og gyðingahatarar erum við með greindarvísitölu sem er lægri en skónúmerið okkar. [Kaldhæðni] Þegar þetta er...

what?

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég sagði aldrei að sprengiárásirnar væru af hinu góða en fyrst USA gerði sprengjuárásir á Afganistan vona ég að þessu ljúki sem fyrst. “ohh neiiii ég sem var farinn að hlakka til að sjá almennilegan bardaga á milli Talebana og norðurbandalagsins eða við sérsveitir usa.” Þessi setning er eins og þú sért að fara að horfa á box í beinni eða eitthvað álíka “merkilegt”. hvers vegna var þig farið að hlakka til? Bjóstu við beinum útsendingum frá CNN og að þú gætir bara sest niður með kók og snakk...

Re: TALÍBANAR GEFAST UPP!

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
tholli: Ertu fífl eða ertu bara búinn að horfa of oft á Rambo:First Blood? Langar þig að sjá góðan bardaga milli usa og talibana? Þú ert að óska fullt af fólki dauða. Þetta er sennilega heimskulegasta komment sem ég hef séð lengi. Og spáðu í því, það getur vel verið að ef þér verður að ósk þinni muni það hafa slæm óbein áhrif á ekki bara þessa aðila heldur líka mig og þig. Simon btw. Þetta var einn andskotans bær sem gafst upp

Hæ sæti...

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sæll spuutnnik, áður en þú ferð að búa til heimasíður af viti mæli ég með að þú kynnist html málinu. <a href="http://www.w3schools.com">W3Schools</a> er frábær vefur, þarna er útskýrt hvernig hver skipun virkar, þér gefið tækifæri til að skoða notkun skipanna með online-tutorials og þú getur breytt kóðanum og séð hvað gerist um leið. Síðan mæli ég með gamla góða notepad til að venjast html-inu áður en þú ferð að nota forrit eins og dreamweaver. Save as: sida.html ekki .txt :) Fiktaðu svo...

Re: Hugsið ykkur!

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Voru guðirnir geimfarar…… argh búinn að vera að reyna að muna hvað þessi bók hét í 2 ár!

Re: 5 ára afmæli og nýr vefur opnaður!

í Hugi fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er merkileg grein. Titillinn er 5 ára afmæli og nýr vefur opnaður. Vefurinn er afgreiddur í fyrstu og síðustu setningu greinarinnar án þess að nokkur staðar sé hægt að sjá urlið á þennan vef. Good job :)

Re: Löggufífl

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Skrítið!

Re: Nafngreiningar glæpamanna.

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það er rétt hjá þér að einstaklingur sem er grunaður um glæp ætti ekki að vera nafngreindur. Þegar kæra er gefin út á hendur einhverjum þarf ætti nafn ákærandans að vera opinberað en ekky fyrr. Jafn vel finnst mér koma til greina að nafngreina menn ekki fyrr en búið er að dæma menn. Kynferðisglæpir eru sér kapítuli.

Re: Ha?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Nú er ég hættur. Þú ert búinn að ákveða að hafa eina skoðun og eina skoðun aðeins. Ekkert er sorglegra en blindur maður, nema ef vera skildi maður sem velur að sjá ekki. Þú hefur engan áhuga á mótrökum og svara yfirleitt með sama svarinu en ég skal segja þér eitt, SÞ höfðu engan rétt til að úthluta eða gefa þetta land. Þarna bjó fólk sem hafði rétt en hann var algjörlega sniðgenginn til að friðþægja samvisku evrópubúa vegna helfararinnar. Ég er nokkuð viss um að málflutningur þinn hér hefur...

Ha?

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
kæri peace4all: Ég veit ekki hvaða skítkast Molotov á að vera með. Í svari hans eru engar aðdróttanir í þinn garð. Ég held að við séum öll sammála. Palestínskir öfgamenn eiga ekki stuðning okkar. Engan veginn. Ég sagði það strax í upphafi, samanber það sem ég sagði um að friður næðist ekki fyrr en hófsemdarmenn sitja báðum megin við borðið. Ég hef samúð með hófsama Ísraelska minnihlutanum líka. Það hlýtur að vera hræðilegt að vera í þeirra sporum. Það þarf nefnilega miklu færri til að...

Re: Gyðingar sæta ofsóknum í eigin heimalandi!

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hmm… Góð grein en nokkuð einhliða. Deilur palestínumanna og ísraelsmanna virðast eiga hug margra um þessar mundir eins og sjá má af fjölda greina sem sendar hafa hingað. Ég held að við getum alveg gleymt því að ræða um það HVER á landið. Báðir aðilar geta stutt kröfur sínar ýmsum rökum, svo sem með sagnfræðilegum tilvísunum í Biblíuna og með rétti hefðar. “Gyðingarnir hafa í þessi 53 ár eða frá því 1948 þegar Ísraelsríki var stofnað reynt að semja við Arabana út af miklu umburðarlyndi en...

Re: Frjáls Palestína !!

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hmm skil ég þig rétt? Palestínumenn eru að berjast fyrir að fá aftur svæðin sem Ísraelar tóku í sex daga stríðinu? Málið væri leyst fyrir löngu ef ekki væri fyrir öfgamenn í röðum beggja deiluaðila. Ef allir myndu mótmæla friðsamlega væri Ísraelsmönnum ekki stætt á því að nota herinn og leyniþjónustuna í sama mæli og þeir gera núna. Friðsamlega mótmæli eru að mínu mati sterkara vopn en grjótkast og sjálfsmorðsárásir. Mitt álit er að ísraelsmenn hafi verið aðþrengdir og haft rétt til að hefja...

Útvarpsmenn...

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
fyrst við erum nú að tala um úvarpsmenn… Tvíhöfði er eitthvað sem má alveg fara að deyja. Djöfull er ég orðinn þreyttur á vælinu í þeim. Það er allt neikvætt hjá þeim. Ég hlustaði á útvarp á hverjum morgni í sumar. Fyrstu fjórir tímarnir á hverjum morgni voru kvöl og pína(7 til 11). Það var sérstaklega í slæmt þegar Rammstein var á landinu því þá var nú aldeilis hægt að væla: “Gáfu okkur ekki viðtal”, “Við bjuggum þá til á íslandi”, og fleira sorglegt. OK! Þeir mega alveg fá kredit fyrir að...

Re: Ætti að banna vissa hluti á huga?

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ha?

Re: psycho bannaður?

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Félagi psycho, kannski gerir það þig hlutdrægan? Veit ekkert af hverju hann er bannaður.

Re: undirskriftin MÍN

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hættur að nenna að lesa hl korkana eftir að einhverjum datt í hug að það væri sniðgugt að setja þessa marque skipun í undriskriftina sína. Nú eru allir með þetta og það sem maður er að reyna að lesa fer meira og minna forgörðum út af skoppandi grænum skrímslum og mislitum línum sem maður nennir ekki að lesa. [VON]Simon

Re: Hvað eða hvenær fór allt úrskeiðis???

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er frekar einfallt í rauninni. Ég ætla að segja ykkur öllum leyndarmál. Sagan er skrifuð af sigurvegurum hvers tíma. Bandaríkin eru einfaldlega sigurvegarar. Simon
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok