Margt hefur verið skrifað og útpælt varðandi þá hugmynd að við værum ekki ein hérna. Svo langt er vitað að við erum “ein” í þessu sólkerfi í það minnsta. Annars er það nú svo að hugarleikfimi af þessum toga er býsna góð og alls ekki verri en hver önnur. Í gegnum aldirnar, ef marka má sögur og staðfesta vitnisburði, þá er ljóst að eitthvað hefur verið að gerast af og til. Málið er að atburðir sem við höfum engar skýringar á fara í þennan flokk, þ.e. óútskýranleg fyrirbæri. Eins og flestir vita þá er UFO, unknown flying objects, þetta þarf alls ekki að þýða geimverur. Mikið af þessum atburðum má skýra á þann hátt að annaðhvort bandaríkin eða evrópuríkin eru með tilraunaflug á nýjum flugvélum eða að prófa nýja tækni til að koma hlutum úr stað. En ennþá eru mjög mörg vafaatriði um þessi málefni, af skiljanlegum ástæðum, það hvílir ótrúlega mikil leynd yfir öllum þessum tilraunum. Það er staðfest að stórveldin eru að prófa ýmisskonar hluti, og staðfest er einnig að sú leynd sem hvílir yfir þeim, virðast réttlæta mannshvörf. En svo er líka annað varðandi “geimverur” að ef einhvern vantar staðfestingar á tilvist þeirra, þá legg ég til að viðkomandi lesi Biblíuna. Þar eru býsna fróðlegar og nákvæmar lýsingar á viðfangsefninu. Einnig bók eftir Edgar Cacey, “Voru guðirnir geimfarar” En varast ber þó að láta hlutina hlaupa með sig í gönur, í dag er það viðtekin skoðun að þeir atburðir sem áttu að hafa gerst í Roswell og á fleiri stöðum, eru runnir undan “samsæriskenningarsinnum!” Þetta var pólitík þess tíma, þ.e. á árunum ‘47-’56. Það þróaðist síðan í pólitík “kalda stríðsins”
Samt er gaman að velta þessu fyrir sér!! :)