Auðvitað er þetta leiðinlegt fyrir strákana í liðunum og líka fyrir þá sem ætluðu að skemmta sér á keppninni. Landlæknir hefði líka getað staðið öðruvísi að þessu. Hins vegar, er það virkilega þess virði að taka sénsinn? Ef landlæknisembættið heldur því fram að sjálfsvígum fjölgi ef þau eru í sviðsljósinu, getur þá ekki verið að þeir hafi eitthvað fyrir sér um það? Mig minnir, ég þori ekki að fullyrða það, að fjölmiðlar fari varlega í að tala um sjálfsvíg einmitt af þessari ástæðu, ef þeir...