Ég ætla að byrja þessa grein með fullyrðingu: Ég er íþróttamaður! Já, ég er engu minni íþróttamaður núna heldur en þegar ég æfði fótbolta og frjálsar hérna í gamla daga. Ég veit að nokkrir eru nú þegar byrjaðir að hlæja að mér en ég ætla að spurja nokkura spurninga. Hvað er það sem gerir íþrótt að íþrótt? Er nóg að hægt sé að keppa í greininni? Haldin eru þó nokkur mót í fjölspilunarleikjum hér á landi. Sem dæmi má nefna ICSN, Skjálfta, Smell og fleirri. Keppt er í einstaklings og...