Nuff: Þetta er nákvæmlega það sem ég sagði í mínu fyrsta svari, þ.e. að Ísraelar eru komnir til að vera. Það sem ég misskildi hjá þér var að ég hélt að þú værir að vísa til réttar ísraela á landinu vegna búsetu þarna fyrir þúsundum ára. Eftir því sem ég les svörin oftar sé ég að við erum sammála um að ekki sé stætt á því að reka ísraela í burtu. Það sem er gert er gert. Það þarf því aðeins, eins og þú segir, að finna friðsamlega lausn til að báðir aðilar geti búið þarna í sátt og samlyndi....