Já, mér finnst vera þónokkur vegur á milli þess að það sé drasl heima hjá manni, og hinsvegar ef það er hreinlega sóðalegt. Ég á stórt heimili, er með 3 börn, hund og kött, þannig að það er nóg að gera. Það er oft drasl heima hjá mér, en aldrei sóðalegt. Gólfin eru skúruð eftir þörfum, oftast einu sinni í viku. Ég læt börnin laga sjálf til inni í sínum herbergjum og hjálpa þeim frekar, en þau eiga að að taka til sjálf hjá sér, ég er þeim innan handar. Þau fara aldrei að sofa nema að...