stopp.is Mig langaði bara að benda fólki á nýja síðu sem er nýlega búin að opna, en á henni hafa nokkrir aðilar tekið saman opinberar upplýsingar um hundabúið á Dalsmynni og sett á einn stað. Þessir aðilar eiga heiður skilið fyrir virkilega þarft framtak og vel unna síðu. Þarna er BARA staðreyndir og hægt er að sjá allar heimildir um leið og maður rennir yfir þessa fáranlegu sögu um afhverju svona hvolpaframleiðsla fær endalaust að viðgangast í siðmenntuðu landi, eins og við viljum telja okkur trú um að Ísland sé.

Það hefur oft verið talað um að það séu bara einmana húsmæður og öfundsjúkir ræktendur innan HRFÍ sem eru að búa til sögur um Dalsmynni, en ef fólk les opinberar skýrslur sem hægt er að finna á síðunni vona ég að fólk sjái loksins það sem dýralæknar og aðrir opinberir starfsmenn hafa sagt allan þennan tíma og vonandi verður þessi síða það spark í rassinn sem yfirvöld þurfa.

Endilega kíkið á stopp.is og gefið ykkur tíma í smá lestur.

Kv. Esthe
Kv. EstHer