Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ódýrir pakkar í boði fyrir þá sem vilja spila (16 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sæl öll, Við erum að fara að flytja inn nokkra Tippmann 98 Custom merkjara og erum að fá þá á frábæru verði 28.000 kall hingað komna með grímu, hopper (magasíni) og 20oz CO2 kút. Þetta er frábær pakki fyrir þá sem vilja spila paintball að staðaldri. Þegar menn eru með eiginn græjur er mun ódýrara að spila en ella. Kassinn af kúlum kostar í dag um 8.000 kall það er fyrir 2000 kúlur. Þannig að það margborgar sig fyrir þá sem spila oft að eiga eigin græjur. Tippmann 98 er ein þekktasta...

Spilað í kvöld í skóglendi (3 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sæl öll, Við ætlum að spila í kvöld í skóglendi innan höfuðborgarsvæðisins. Nei þetta eru ekki mistök. Við ætlum að spila í skógi innan höfuðborgarsvæðisins. Sumir hafa spilað þarna áður og vita að þetta er stórskemmtilegt svæði. Við þurftum að hafa talsvert fyrir því að fá leyfi (landeiganda) til að spila þarna þannig að ekki er víst að þetta verður endurtekið. Mæting í Lund í Kópavogi (Paintball í Kópavogi) klukkan 19:00. Lagt verður af stað þaðan klukkan 19:15 í síðasta lagi. Kúlur verða...

Eitt ár liðið frá fyrsta eintaki Facefull (0 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í tilefni að eins árs afmæli blaðsins snedi Face-Full frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu. One year already… To celebrate this event, our new issue comes as complete as ever, with a design and summer paintball fashion spread that will remind you of why you fell in love with our magazine in the first place. But don't worry, we're still as cutting edge as ever, with our Music, Video Games and high-tech Gizmo columns, most definitely part of the paintball world. We'll make you travel, with...

Paintball í Vestmannaeyjum helgina 20-21 júlí 2002 (2 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Paintball völlur verður settur upp í Herjólfsdal um næstu helgi. Þetta er í fyrsta skipti sem Paintball kemur til Eyja og er mikil tilhlökkun yfir því í Eyjum. Fyrir þá sem hafa áhuga á því að spila þá er hægt að panta tíma í síma 893-9000. Nú er um að gera að skora á alla sem þú þekkir til að mæta í Herjólfsdal um helgina til að spila. Þetta er skemmtilegra en þú heldur. Ekki missa af þessu tækifæri. Það er líka kominn tími til að það verði stofnað Litboltafélag í Vestmannaeyjum....

Sundlaugin í Breiðholti... hmmm (37 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Jæja… í morgun skellti ég mér í sund í tilefni dagsins með Jóa félaga mínum. Hann á heima í Breiðholti og því lá eiginlega beint við að fara í laugina þar. Ég hef ekki komið í laugina í Breiðholti í 10 ár í það minnsta. Þvílíka kúltúrsjokkið sem ég fékk þarna inni. Þetta hlýtur að vera ömurlegasta sundlaugin í Reykjavík. Það hefur ekkert verið gert fyrir þessa laug í þessi 10 ár síðan ég var þarna. Ekki einusinni eðlilegt viðhald. Þegar ég kom inn í karlaklefann þá var þetta eins og að fara...

Paintballmót á Akranesi á laugardag (9 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sæl öll, Ákveðið hefur verið að halda mót á Akranesi næstkomandi laugardag. Byrjað verður að spila klukkan 10:00 og til ca 15:00. Margir eru að spá í að tjalda á skaganum og detta í það um kvöldið. Það má sem sagt búast við hörku stemmningu. Í það minnsta eitt lið mætir frá Keflavíkurvelli og Suddarnir koma pottþétt. Englarnir og Bene Tleilax mæta. Sveinbjörn og Enok úr Ice Family eru á ættarmóti ásamt Val, Söndru og Heimi úr Bulletproof. Þannig að þau 2 lið mæta ekki. Spurning með aðra úr...

Mót á Akranesi? (8 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hvernig er það? Eru menn til í að keppa á Akranesi á sunnudaginn eftir viku? Við erum að spá í því að halda eitt mót uppá Skaga og viljum aðeins fá að heyra í ykkur hvernig ykkur lýst á. Endilega segið ykkar skoðun á því. 2 lið hafa þegar sagts ekki geta mætt, það eru Icefamily og Bulletproof en meginþorri þeirra liða er að fara á ættarmót. Það væri kannski hugsandi fyrir þá liðsmenn þeirra liða að sameinast í eitt lið fyrir þessa keppni. Heyrumst í bráð, Xavier P.S. Heyrði í Guðmanni áðan....

VERÐ Á KÚLUM HÆKKAR (9 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Sælir, Þetta eru ekki gleðifréttir fyrir spilara. Verð á kúlum hækkar frá og með deginum í dag úr 7.000 krónum í 8.000 krónur. Ástæða þessa er sú að tollayfirvöld sáu sér leik á borði og breyttu um tollflokk á litboltunum. Núna eru þeir flokkaðir sem skot, sama flokk og haglaskot og þess háttar. Þetta er þess valdandi að á kúlurnar leggst 7,5% tollur og 10% vörugjald sem ekki var áður, þetta þýðir 18,25% hækkun á innkaupsverði okkar fyrir utan VSK. Við (Engill ehf og Litbolti ehf) neyðumst...

Pósturinn á Huga. (12 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Nú er búið að taka póstinn niður vegna þess að kerfið sem var í notkun var alltaf að bila. Ég nota Huga póstinn mjög mikið og er mjög mótfallinn því að það verði bara hætt að nota hann. Pósturinn er eitt af því sem dregur mig alltaf aftur og aftur á þessa síðu og gerir hana að svona “one stop shop” ef ég sletti nú aðeins. Persónuleg notkun mín á Huga hefur fallið verulega þessa daga síðan pósturinn ver tekinn. Ef aðrir eru eins mun draga úr heimsóknum á Huga og þ.a.l. minni auglýsingasala...

Merkjara á mót erlendis (0 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég talaði við Snorra Sigurjónsson hjá Ríkislögreglustjóra áðan og var að spyrja hann um framkvæmdina á því að fara með merkjara erlendis til að keppa á mótum og þess háttar. Hann svaraði því að það ætti ekki að vera mikið mál. Hann þyrfti að búa til einskonar leyfisbréf fyrir merkjarana og þá ætti það að ganga að flytja þá inn og útúr landi. Hann fer þó frammá það að hafa staðfestingu frá mótsstjórn að viðkomandi sé í raun að fara að keppa á móti á þeirra vegum. Þetta er flott fyrir þá sem...

Stórskemmtilegur leikur í Frostaskjóli (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Það er greinilegt ef marka má leik KR og Grindavíkur að liðin í Íslandsmótinu er mun betur undirbúin en oft áður. Fyrstu leikir móts hafa yfirleitt verið uppfullir af mistökum sem hægt er að skrifa á æfingar og reynsluleysi. Í gær var spilaður stórskemmtilegur bolti í vesturbænum. Þar mættust liðin sem spáð er toppsætum á Íslandsmótin á þessu ári (Stöð 2 og SÝN spá KR sigri, allir aðrir Grindavík). Grindavík sýndi skemmtilega takta en KR hafði tökin á spilinu á vellinum og oft á tíðum...

FaceFull 5 er að koma (2 álit)

í Litbolti fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sæl öll, Fabien var að senda mér þennan póst til að kynna komu FaceFull #5. Það verður til sölu von bráðar og þá að öllum líkindum hjá Litbolta í Kópavogi (já það er verið að fara að opna núna á næstu dögum). Hér fylgir greininn. Later, Xavier We proudly present the new issue of Facefull magazine (#5), better than ever with its 212 jam-packed pages of paintball heaven. It is available now at all major distributors Already renowned for its photographic excellence and impeccable layout, you...

Bara Ísraelum að kenna? (112 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þessi grein byrtist í Morgunblaðinu laugardaginn 13. apríl og er eftir Óla Tynes fréttamann. Þessi grein er mjög góð og held ég að allir hafi gott af því að lesa hana. Umræðan uppá síðkastið hefur verið svo lítið lituð af skoðunum Palestínumanna og það að Ísrael sé vondi kallinn í þessu máli. Bara rétt að minna á að “Sjaldan veldur einn er tveir deila!” Hér kemur greinin: ***************************** Morgunblaðið - Laugardaginn 13. apríl, 2002 - Aðsendar greinar Mið-Austurlönd Bara Ísraelum...

Helv. Aco-Tæknival (21 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 1 mánuði
Vinur minn var svo heppinn að kaupa ferðavél af Aco-Tæknival þegar að lætin voru hvað mest í kringum fartölvumarkaðinn í haust. Aco-Tæknival var með yfirslýingar um það að þeir væru að bjóða sambærilega eða jafnvel betri vöru fyrir námsmenn. Vinur minn kíkti á þetta og fann snilldar vél hjá þeim. Toshiba vél með öllu og skrifara í kaupbæti. Síðan kom það uppá að hann var að stinga headphones í samband við tölvunna að eitthvað plaststykki sem að hledur headphonesunum föstum datt hreinlega úr....

Skuldir á Videoleigum!!! (90 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég var að spá í að taka mér spólu í kvöld. Þar sem myndin sem að mig langaði að sjá var ekki inni á videoleigunni sem að ég versla venjulega við þá ákvað ég að fara í Videoheima í Lágmúla og athuga þar. Var hvort eð er að fara að versla eitt og annað fyrir konuna í 10-11. Viti menn myndin mín var inni. Ég hef ekki verslað í Videoheimum frá því að ég flutti úr Háaleitishverfinu fyrir 7 árum síðan. Ég var því ekki viss hvort að ég væri skráður í tölvukerfi þeirra. Ég byrja á því að velja...

Eldur laus á litboltasvæði í Kópavogi (6 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Eldur laus á litboltasvæði í Kópavogi Eldur kviknaði í gömlu húsi á litboltasvæðinu við Nýbýlaveg í Kópavogi í kvöld. Slökkvilið var kallað út þegar stundarfjórðung vantaði í átta og var svæðinu lokað af að hluta vegna sprengihættu sem stafar af litaskothylkjum sem þar er að finna. Nokkrir slökkviliðsbílar voru sendir á svæðið og hafa þeir ráðið niðurlögum eldsins. Eldkafarar eru nú að störfum á vettvangi og telur lögregla að svæðið sem var lokað verði opnað innan skamms. Þessi frétt er...

Skjár einn safnar fyrir sjálfan sig! (55 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að í 2 ár höfum við haft ókeypis sjónvarp á Íslandi. Dagskráin hefur verið misjöfn og hafa menn á þeirri stöð verið tilbúnir að henda þáttum sem ekki standa sig og prófa eitthvað nýtt. Ég veit ekki með aðra en ég hef virkilega notið þess að hafa sjónvarpsstöð sem á er horfandi með snilldarþáttum eins og Survivor 1 & 2, Malcom in the Middle, SNL, Djúpu lauginni, CSI, The Practice, Law and order, Leno og Conan svo fátt eitt sé nefnt. Nú var ég að lesa svör...

NÝTT FACEFULL að koma út (6 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja, Fabien hjá FACEFULL var að hringja í mig og spyrja hvort að einhver áhugi væri fyrir því að fá FACEFULL til Íslands. Ég sagði að svo væri. Hann spurði hvað við vildum fá mörg eintök og nú spyr ég ykkur. Viljiði kaupa FACEFULL á 750 kall stk. Endilega látið vita sem fyrst því að ég verð að láta hann vita á morgun í seinasta lagi. Later, Xavier P.S. Þeir sem ekki vita hvað FACEFULL er þá er FACEFULL nýjasta tímaritið í Paintball heiminum í dag. Fyrsta tölublaðið komu út í Toulouse á...

Aðalfundir litboltafélaga á Íslandi (2 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er mín tillaga að aðalfundir allra litboltafélaga á landinu verði færðir á haustin í stað þess að hafa þá um miðjan vetur. það er staðreynd að áhuginn er hvað mestur eftir sumarið og fólk er uppfult af hugmyndum um hvað má betur fara. þegar langt líður á milli þess að maður spilaði seinast þá man maður ekki helminginn af því sem að maður ætlaði að segja á aðalfundinum. Ég hef allavega lent í þessu. Annað atriði er það að til að fá í gegn einhverjar breytingar á reglugerð um litbolta þá...

Reykjavíkurmót í paintball á laugardag (8 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Reykjavíkurmót í paintball verður haldið á laugardaginn 25. ágúst í Lundi í Kópavogi. Keppt er í 5 manna liðum og er kostnaður vegna þátttöku 15.000 kr á lið eða 3.000 kr á mann. Innifalið í því er eingöngu mótsgjaldið. Ef að fólk þarf að leigja einhvern búnað kostar það 1.000 kr aukalega. Kassi af kúlum kostar 7.500 kall og eru það 2000 kúlur. Þú spilar varla paintball mikið ódýrara en þetta!!! Nú er um að gera að safan saman félögunum sem að fóru með þér í paintball seinast og gera góðan...

Íslandsmeistaramót í Paintball (6 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég veit ekki betur en að mótið verði núna um næstu helgi þ.e. 25.-26. ágúst og verður það haldið í Kópavogi á Sup'AirBall vellinum. Hvað reglur varða þá hef ég tekið það á mig að stýra þeim og ákveða hverjar þær verða. Þær verða settar hér upp á vefin um leið og þær eru tilbúnar. Verið er að tala um mótsgjald uppá 15.000 kr á lið fyrir 2 daga keppni. Ekki er gert ráð fyrir færri en 12 liðum til þáttöku. Verðlaunin verða vegleg en Éyþór Guðjónsson hjá Litbolta ehf sér allfarið um þann pakka....

PAINTBALL Á ÍSAFIRÐI 17. - 19. ÁGÚST (6 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Næsti viðkomustaður okkar verður Ísafjörður um næstu helgi. Sup'AirBall völlurinn verður settur upp með nánast sömu uppstillingu og verður á Íslandsmeistaramótinu. Það er um að gera fyrir alla Vestfirðinga að skella sér í Paintball núna þegar tækifærið gefst í ykkar heimabyggð. Verð fyrir klukkutíma spil, leigu á öllum græjum og 100 kúlum er 1990 kr. Auka 100 kúlur kosta 990 kr. Byrjað er að taka niður pantanir í síma 893-9000 Hlakka til að sjá sem flesta um helgina. Kveðja, Xavie

PAINTBALL Á AKUREYRI UM VERSLUNARMANNAHELGINA (1 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Við verðum aftur á Akureyri um Verslunarmannahelgina. Frá fimmtudegi til þriðjudags verður litboltavöllur við Drottningarbraut á Akureyri. Frábær skemmtun fyrir alla. 15 ára aldurstakmark 1.990kr klukkutíminn með öllu sem þú þarf til að spila og 100 kúlum. (Galli, gríma, byssa, skotbelti, kolsýruhylki, áfyllingar og frábær skemmtun) Hverjar 100 kúlur eftir það kosta 890kr. Spilaðir 6-8 leikir á klukkutímanum. Allir velkomnir! Sjáumst kát á Akureyri um Verslunarmannahelgina P.S. Þarf...

Nýtt Paintball tímarit - FACEFULL (3 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég fékk úi hendurnar í morgun nýtt paintball tímarit sem á að koma út 6 sinnum á ári og heitir ritið FACEFULL og er gefið út af Laurent Hamed sem er aðaleigandi Adrenaline Games ásamt Eduardfo Pellicci sem er þvílíkur paintball áhugam´ður og art director hjá frægu tískuriti. Það er skemmst frá því að segja að blaðið er frábært. Þetta er “Paintball meets Vouge” þetta er einmitt það sem að við þurfum til að lifta íþróttinni svolíðið upp. Það er mikið um greinar og var fjallað um öll helstu...

Mótinu á Akranesi lokið (8 álit)

í Litbolti fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jæja, þá er öðru móti sumarsins lokið. Sigurvegarar voru IceFamily, í öðru sæti voru Chickens og í því þriðja voru Væringjar. En nóg um það… besta liðið á svæðinu var auðvitað Englarnir!!! Englarnir spiluðu allir með leigubyssum og tóku stig af öllum liðum. Hehehehehe… það er gaman að geta skotið mikið af skotum. Hmm… ég er kannski farinn að rugla helst til of mikið, ha? Já, mótið… Fór vel af stað og segja má að allir hafi skemmt sér mjög vel. Sæðið var að vísu mjög blautt og hafði það...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok