Ódýrir pakkar í boði fyrir þá sem vilja spila Sæl öll,

Við erum að fara að flytja inn nokkra Tippmann 98 Custom merkjara og erum að fá þá á frábæru verði 28.000 kall hingað komna með grímu, hopper (magasíni) og 20oz CO2 kút.

Þetta er frábær pakki fyrir þá sem vilja spila paintball að staðaldri. Þegar menn eru með eiginn græjur er mun ódýrara að spila en ella. Kassinn af kúlum kostar í dag um 8.000 kall það er fyrir 2000 kúlur. Þannig að það margborgar sig fyrir þá sem spila oft að eiga eigin græjur.

Tippmann 98 er ein þekktasta paintball byssa sem um getur. Hún er þekkt fyrir að vera áreiðanleg og þægileg í viðhaldi. Tilvalinn fyrir þá sem eru að byrja í þessu sporti. Gríman sem fylgir er einföld Scott eða JT gríma. Hún er með einföldu gleri og gæti því móðað. Einfalt að redda því með almennilegu móðuspreyji. Kolsýrukúturinn er standard 20oz (stærsta gerð) með pin-valve, einfaldur og skrúfast bara á byssuna og er tilbúinn.

Þeir sem hafa áhuga á að ganga að þessu tilboði hafið samband við Vilhelm í síma 898-3499 eða með maili á vilhelmpb@ru.is

Kærar kveðjur,

Xavier

Myndin hérna til hliðar er af Tippmann 98 Custum (silver) sem er nákvæmlega eins og sú sem verið er að bjóða uppá í þessu tilboði.
Hægt er að fá freari upplýsingar um byssuna á <a href="http://www.tippmann.com/gunline/98c.asp">http://www.tippmann.com/gunline/98c.asp</A