Paintballmót á Akranesi á laugardag Sæl öll,

Ákveðið hefur verið að halda mót á Akranesi næstkomandi laugardag.

Byrjað verður að spila klukkan 10:00 og til ca 15:00. Margir eru að spá í að tjalda á skaganum og detta í það um kvöldið. Það má sem sagt búast við hörku stemmningu. Í það minnsta eitt lið mætir frá Keflavíkurvelli og Suddarnir koma pottþétt. Englarnir og Bene Tleilax mæta.

Sveinbjörn og Enok úr Ice Family eru á ættarmóti ásamt Val, Söndru og Heimi úr Bulletproof. Þannig að þau 2 lið mæta ekki.
Spurning með aðra úr þeim liðum. Eitthvað hefur heyrst að Goodfellas ætli ekki að mæta því að Ice Family sé ekki, reyndar vonum við að það sé bara kjaftasaga.

Já… ný lið… ekki má gleyma þeim. Þeir sem vilja skrá sig til þátttöku og/eða þurfa að fá lánaðan búnað þurfa að hafa samband við Vilhelm í síma 898-3499.

Mótsgjaldið er sem áður 1.500 krónur per mann eða 7.500 fyrir hvert lið. Þeir sem þurfa að fá lánaðar græjur borga þar að auki 1.000 kall fyrir það. Kúlur verða seldar í kassavís á staðnum (nýjar frá Diablo) á 8.000 kall kassinn.

Vonast til að sjá sem flesta á Skagaverstúninu á laugardaginn.

Bestu kveðjur,

Xavie