Mót á Akranesi? Hvernig er það? Eru menn til í að keppa á Akranesi á sunnudaginn eftir viku?

Við erum að spá í því að halda eitt mót uppá Skaga og viljum aðeins fá að heyra í ykkur hvernig ykkur lýst á.

Endilega segið ykkar skoðun á því. 2 lið hafa þegar sagts ekki geta mætt, það eru Icefamily og Bulletproof en meginþorri þeirra liða er að fara á ættarmót. Það væri kannski hugsandi fyrir þá liðsmenn þeirra liða að sameinast í eitt lið fyrir þessa keppni.

Heyrumst í bráð,

Xavier

P.S. Heyrði í Guðmanni áðan. Hann er á mótinu í Toulouse og var í þvílíkum gír. Hann sagði að þetta væri mikið stærra en hann hefði getað látið sér detta í hug. Nú er bara að skella saman liði fyrir næsta ár og skrá okkur í Novice flokkinn. Það er það eina sem gildir. Ekki satt? kv, X