Vonandi lýst ykkur vel á!!!
Gagnrýni vel þegin!!!
KV. Hobbitin;)

Undir áhrifum hafsins.

Öldugljáfur, fuglakvak,
í bland við drunur skipsins,
lýsa angurværð minni.

Ljós borgarinnar
lýsa upp dimmt síðkvöldið,
engir kyndlar
birta mina dimmu sál.

Tónlist hafsins;
dimm, þung, magnþrungin,
mun fylgja mér alla ævi .
Toga mig upp úr erfiðleikum
og einmannaleik.

Því hún minnir mig á
að hafið er alltaf eitt,
alla sína eilífð.
Sama hversu mörg skip
á því sigla,
sama hversu mörg
lík í því liggja.

En ég,
ég hverf einn daginn
á vit veraldar
og skil hafið eftir
í einmannaleik sínum.
Helvíti er ekki staður heldur hugarástand.