Elsku börn þessa lands.
Þið langveiku ofvirku lesblindu
fjölfötluðu einhverfu börn.
Þið sem þjáist af þunglyndi vélindabakflæði
offitu athyglisbresti og geðhvörfum.
Þið hæfileikalausu borðtuskur.

Listir þrífast ekki í góðæri.

Eigum við ekki að leggja frá okkur pennann
sem með sjálfsmorðshugleiðingaljóðablekinu
og borða rítalínið okkar og prósakið
og biðja sköpunarþörfina óstjórnlegu að bíða
þangað til við verðum fátæk aftur?