Fyrirgefðu, þetta var kannski illa orðað, eins og ég sagði er þetta ekki persónulegt og ég var nú ekki að meina að þú værir í fjöldaframleiðslu. Mér finnst bara augljóst að rót vandans er sala á dýrum. Ég er ósammála þér varðandi það að fólk fari betur með keypt hreinræktuð dýr. Það þykir kannski fínt og flott, statusmerki eins og jepparnir, en ég hef séð illa farið með góða hreinræktaða hunda og býst við að sama gildi um hreinræktaða ketti. Það er nú einusinni þannig að mannskepnan hefur...