Hæ hæ. Ég á sjálf þrjá ketti, tvær læður og lítinn högna sem við tókum að okkur. Þær eru eldri og eru systur og þær tóku ekkert sérstaklega vel á móti Hnoðra. Það er ennþá stríð stundum, sérstaklega þegar hann vill leika en þær ekki. Jæja, allavegana þá vill hann ekki mikið klapp og klór nema að hann fái að koma og biðja um það sjálfur. Hann vill ALLS EKKI láta halda á sér og er fremur taugaveiklaður. Leyfðu litlu lórunni þinni bara að koma til þín, þeim finnst æði að fá að liggja undir sæng...