Þá er þessi þáttur búinn og ég ætla að reyna að lýsa honum fyrir ykkur.

Þátturinn byrjaði bara á rólegu nótunum eins og venjulega, og í því augnabliki vorum við að horfa á Drake. Jon fór einhvað að rífast við hina (sorrý en ég man ekki um hvað ;P). Kvenkynið varð einhvað fúlt vegna þess að þeim fannst karlarnir ekki gera nógu mikið.

Verðlaunakeppnin snérist um að grafa upp og synda eftir púslkubbum (16 stk). Verðlaunin voru saumavél og fataefni. Keppnin byrjaði og Drake fékk ágætt forskot því Tijuana gat ekki fundið kubbinn (synti). Þegar Osten fór út í sjóinn að ná í kubbinn var hann nálægt því að drukkna og djöfull hvað hló ég mikið að honum (kallaðu mig kvikindi eða hvað sem þú vilt, mér er sama) og Ryan O. og Andrew þurftu að synda eftir honum. Að sjálfsögðu tafði þetta mjög fyrir þeim og þau áttu ekki lengur séns á að vinna. Ég var hins vegar orðinn frekar hræddur þegar Trish ætlaði ekki að gefa fundið kubbinn í sandinum, en að lokum tókst það og Drake vann.

Eins og venjan er fengu þau hluta af fjársjóðskorti, og þá voru Drake komin með alla þrjá hlutana.
Þegar þau fóru að leita fundu þau kistuna eftir nokkra leit. Uppúr kistunni gaus ógeðsleg lykt og þau voru að verða frekar svekkt yfir því að þarna væri ekkert merkilegt vegna þess að þau höfðu gert sér mjög miklar vonir og voru búin að dreyma um þetta lengi. Þau urðu hinsvegar aftur glöð þegar þau fundu súkkulaði í kistunni. Í kistunni var einnig dósamatur og mygluð teppi.
Eins og alltaf í þessari þáttaröð fer vinningsliðið og stelur frá hinum. Í þetta skipti fór Trish og tók lampann þeirra.

Í Immunity Challenge ákváðu Drake að gera hlut sem ég var alls ekki sáttur við…þau ákváðu að tapa til að losna við einhvern (ætluðu held ég að losna við Burton) og létu Rupert og Burton (sterkustu mennina)sitja hjá. Keppnin snérist um það að hrinda hvort öðru af plönkum sem var raðað upp í einskonar skákborð. Einhverskonar blanda af skák og glímu. Morgan unnu þetta sem var fyrsti sigur þeirra í þáttunum. Það sem kom síðan öllum á óvart var að þau fengu að velja sér einn mann úr Drake til að vera hjá sér þar til í næstu Immunity Challenge. Þau völdu Rupert.

Á Tribal Council var Burton rekinn sem er að vissu leiti nokkuð skrítið, vegna þess að hann og Rupert eru sterkustu gaurarnir í Drake.