Þó þetta sé ágætlega unnin og leikin mynd, þá fer það afskaplega í taugarnar á mér að hún þykist vera byggð á raunverulegum atburðum. Jú, það var prestur á áttunda áratugnum sem var handtekinn fyrir að drepa unga konu við meintar særingar, en þar með enda raunveruleikatengsl myndarinnar. Hann var ekki í Bandaríkjunum og réttarhöldin voru ekki um vísindi gegn trú, heldur eingöngu það hvort maðurinn hafi gert sér grein fyrir því að það sem hann var að gera gæti endað með dauða. Ef svo var, var...