Í fyrsta lagi, þá er ekki auðvelt að koma a.m.k. 500 þúsund manns á brott á tveim dögum. Heldurðu að það væri hægt að rýma Ísland á tveim dögum, jafnvel þó Ísland hefði landamæri að öðru landi? Í öðru lagi eru ekki allir með farartæki. Í þriðja lagi er megnið af því fólki sem eftir er, fólk sem ekki hafði tök á því að komast í burtu, ýmist vegna aldurs, veikinda, vinnu eða fátæktar eða vegna annarra aðstæðna. Á meðan tugir þúsunda eru á götunni eða á íþróttaleikvöngum, standa hótel auð, þar...