Summer of Sam er nýjasta mynd meistaraleikstjórans Spikes Lee (Do the Right Thing, He Got Game, Malcolm X) og eins og oftast þegar hann á í hlut hefur myndin hlotið frábæra dóma gagnrýnenda, sem margir hverjir telja hana til bestu mynda hans. Þeir sem séð hafa myndir Lees og hrifist af handbragði hans ættu því tvímælalaust að sjá þessa, en hún skartar í aðalhlutverkum þeim John Leguizamo, Adrien Brody, Miru Sorvino, Jennifer Esposito, Anthony LaPaglia, Bebe Neuwirth, Ben Gazzara og John...