Komandi kappakstur sem háður verður í Austurríki um næstu helgi verður sá hundraðasti í röðinni hjá David Coutlhard. Coulthard segir töluna
fallega og bendir á að Jackie Stewart hafi keppt 99 sinnum og stefni hann því að verða keppnisreyndasti Skotinn í
Formúlu 1. Honum líst vel á komandi keppni og segir mesta hluta brautarinnar vera mjög skemmtilega. Skotinn hefur undanfarin tvö ár átt góð úrslit á brautinni. Sérstaklega er mjög
eftirmynnilegur akstur hans árið 1998 er hann barðist frá síðasta sæti og kláraði annar.
(sphinx)