RÍKHARÐUR Daðason, landsliðsmiðherji í knattspyrnu og leikmaður Viking Stavanger í Noregi, hefur tekið tilboði Stoke City og skrifar undir þriggja ára samning við félagið á næstu dögum. Ekki er þó komið á hreint hvort hann fer þangað strax og hefur tímabilið með Stoke hinn 12. ágúst eða hvort hann lýkur samningi sínum við Viking og gengur til liðs við Stoke 1. nóvember.
sphinx