David Coulthard gat ekki stillt sig um smá fyndni á kostnað Michaels Schumacher í tengslum við deilurnar innan vallar sem utan um svigbeygjur og aksturslínuvörn.
Coulthard nýtur þess á morgun að hefja keppni beint fyrir framan Schumacher og sagðist hafa gefið Rubens Barrichello nokkur góð ráð í því sambandi.
„Ég hvatti hann til að sýna aðgæslu í ræsingunni og sennilega ætti hann bara að bjóða Michael sæti sitt á rásmarkinu því hann myndi hvort eð er verða komin á þá hlið brautarinnar áður en að fyrstu beygju kæmi," sagði Coulthard og glotti við.
Sphinx =)