Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Paul is Dead

í Músík almennt fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Annars virðistu vera dáldið upptekinn af dauða Bítlanna, grein um John Lennon fyrir neðan… ;)

Re: Gustaf II Adolf

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hey, líkamsræktarkennarinn minn heitir Gústaf Adolf :)

Re: Prófstemning og ferðalög

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
mér finnst þetta einmitt alltaf jafn gaman eitthvað, fullt að fólki að panikka o.s.frv. Ég mætti snemma einmitt til að spjalla við alla, oft fær maður líka að vita eitthvað gagnlegt.

Re: Skaterboy look!

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 5 mánuðum
mér finnst hún nú bara mjög venjuleg á þessarri mynd…

Re: Dánardægur John Lennon

í Músík almennt fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvernig vitiði hvor samdi Bítlalögin? Bara svona kunnátta eða finniði þetta einhvernveginn (td. er Penny Lane algjör McCartney). Annars er uppáhaldið mitt í augnablikinu Working Class Hero. Hvernig ætli John Lennon væri annars ef hann væri á lífi í dag? Gamall og steiktur hippi?

Re: Paul is Dead

í Músík almennt fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Vá hvað þeir áttu sjúka áðdáendur :) Annars var ég búin að lesa mér til um þetta áður, finnst þetta frekar fyndið :)

Re: fm 104.5

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
æi vá… ég er stelpa og þetta fer ekkert í taugarnar á mér. Og það er nú alveg ljóst að það eru fleiri stelpur sem hlusta á Celine Dion heldur en strákar.

Re: Morgunblaðið bregst lesendum sínum

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Var þetta ekki í “Neytendum”? Þar er alltaf svona, enda þessi dálkur gerður til þess.

Re: Hver er besta bók allra tíma?

í Bækur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég fann þessa sögu á snerpa.is/net og las parta, djöfulsins klám ;)

Re: Ofurhugalegspurning...

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
blessaður, Hulda hefur verið hér síðan alltaf, alltaf að pósta greinum og svara þeim (einu sinni fékk maður stig fyrir að svara greinum!) og þó hún láti minna á sér bera núna er hún samt The Hugari.

Re: Hommar

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Og af hverju er þessi grein í heitum umræðum? Hún er síðan í september!

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Af hverju er Best of diskurinn með Bob Dylan lélegur? Ég var nefnilega að spá að kaupa hann…

Re: Sýndarhljómsveitin Kraftwerk

í Raftónlist fyrir 23 árum, 5 mánuðum
texta við lagið, heh ;) ég held þú hafir nú ekki þurft að leggja þig mikið fram við að segja “svenni” :) Flott hjá þér annars

Re: Hver er besta bók allra tíma?

í Bækur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Of margar bækur eru góðar. Allt of margar. Þegar ég var barn át ég bækur í mig, nú hefur þessu illilega hrakað. En eina bók hef sennilegast lesið oftar en aðrar, það er Litli prinsinn! Af hverju? Því að ég vaknaði einu sinni eftir fyllerí, með ömurlega þynnku, vodkabragð í munninum, og fannst ég bara tilgangslaus manneskja almennt. Og þá ákváð ég að rifja þessa bók upp. Eftir nokkrar síður leið mér strax miklu gáfulegar og hef átt það til síðan að glöggva í hana eftir partý :)

Re: Elsku Sara

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
jebb, ágætt

Re: Klaufa próf svör :)

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
þetta er mín uppáhalds, úr einum kristinfræðitíma í fimmta bekk: Kennari við strák: Hvað hétu fyrstu mennirnir á jörðinni? Strákurinn: Ehh… Hans og Gréta!

Re: Taugaveiklaðir kennarar

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég held að vandamálið sé ekki kennararnir heldur krakkarnir… allavegana myndi ég klikkast ef ég væri kennari í grunnskóla :)

Re: Um Verzlógellur og verra fólk!

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 5 mánuðum
annars heyrði ég snilldarsetningu einu sinni: “Það er einn pönkari í versló… og ég þekki hann!” Nohh, aldeilis frumleiki á ferðinni þar… ;)

Re: Allt sem ég get sagt um Christina Aguilera

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ónei, Madonna hefur ekki talent, nema kannski einn: talent til að koma sér á framfæri Mér finnst Madonna ótrúleg kona, það eru fáir sem geta haldið sér í poppbransanum í 20 ár! (í fljótu bragði dettur mér meira að segja enginn annar í hug) og ég á eina plötu með henni, Ray of Light. En hún hefur engar tónlistargáfur, það er alveg víst, og hún er nú líka ófeimin við að viðurkenna það. Madonna flúði til New York 18 ára, og ætlaði sér að verða fræg. Hún var balletdansari en ekki það góð að hún...

Re: Klæðskerasaumað útvarp!

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
þetta fór reyndar eitthvað illa í tölvuna mína, explorer slökkti á sér og eitthvað vesen, svo fór allt í hakk, svo að ég þori ekki að fara í þetta á nýju græjunni. en ekki taka þetta of alvarlega, gamla tölvan var hvort sem er orðin soðin fyrir.

Re: Marilyn Manson

í Metall fyrir 23 árum, 5 mánuðum
en hann semur þessa tónlist ekki alveg sjálfur, hann er bara að covera gömul lög og selja þau út á þessa ógeðslegu ímynd sína. Og hvað varðar eitt komment um Sex Pistols þá voru þeir bara nokkuð flottir, allavegana voru Johnny og Sid ágætlega hot gaurar :)

Re: Bob Dylan mistúlkun?

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
æi fólk á almennt ekki að vera að covera lög, hvað þá að gefa út fjöldamargar plötum með coverum… tilgangslaust.

Re: U2

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú sleppir nú 16 árum úr sögu hljómsveitarinnar (talar um New Year's Day og svo allt í einu Elevation túrinn) en samt fínt. Ég elska Sunday Bloody Sunday og With or Without You. Þessi lög eru bara yndisleg. Annars finnst mér War og tónleikadiskurinn Under a Blood Redy Sky bestu diskarnir. Djöfull gefði ég mikið fyrir að fara á svona U2 tónleika '83.

Re: Flokkun á tónlist

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Punk rock er Sex Pistols og Clash, ekki Offspring og Green Day! Þær eru frekar postpunk. Annars mæli ég með allmusic.com, þeir skilgreina þetta vel.

Re: Brian Eno

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
ég vissi nú bara að hann væri pródúsent U2. Takk fyrir þetta! Og flott hjá þér að geta heimilda.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok