Skaterboy look! Okey, ég var að spá. Hvað finnst ykkur um þetta svokallaða skaterboy look sem er alveg að renna inn núna. Ég held að það varð einhver bylting í tískuiðnaðinum þegar Avril Lavigne steig á sviðið, hún varð vinsæl og allt í einu varð þvílíkt vinsælt að vera í hermannabuxum, svona hnésíðum stuttbuxum og þröngum nærbol. Ég meina er Avril að fara eftir nýjustu tísku eða fer tískan eftir henni? Hver veit? Hún segist klæða sig eins og hún vill og ég veit ekki. Hvað finnst ykkur um stelpur sem eru í svona fötum og hlaupa um á hjólabretti og línuskautum? Persónulega finnst mér það nokkuð töff. Ég geng bara í venjulegum fötum að mínu mati en fíla rosalega þetta nýja (eða gamla) look. Jæja, segið mér allavega hvað ykkur finnst ;)

Já, audda hafa hermannabuxur verið lengi í tísku en ekki svona alveg eins og núna. Eins stelpa kom í skólann í dag klædd eins og skæruliði! Í hermannajakka og hermannabuxum!