Já, ég fúslega viðurkenni það hér að ég er algjör ANTI-MANSON-isti og það er einhver sá ömurlegasti maður sem uppi hefur verið á jarðríki ásamt öllu hans hyski sem að fylgir honum. Hann er ógeðfelld mannvera, og öll lögin hans eru léleg. Hann mun aldrei hljóta heiðvirða viðurkenningu fyrir svokallaða list sína sem minnir helst á fólk í útrýmingarbúðum nasista í seinni heimstyrjöldinni. Ég hef hlustað á nokkur af hans lögum og er þetta ekkert annað en ómótlegt garg og öskur og textarnir eru bara til að lýsa yfir viðurstyggð á lífinu og því sem er fallegt í heiminum. Svo við förum nú að krifja líkin sem að fylgja þessu hlandfési að þá eru þau daufleg og einhuga uppvakningar sem að fylgja meistara sínum hvert skref, klæða sig eins og hugsa eins og eru eins. Þetta er eins og her uppvakninga sem hefur það eitt að markmiði að láta taka sig í rassgatið af Marilyn Manson! Já, MM er að taka allt þetta lið í þurrann bossann því að honum er skítsama um alla þá sem að hlusta á tónlistina hjá sér, og vilja sleikja götuna sem hann gengur á. Hann er bara að græða á tá og fingri á þeim sem að fylgja honum, og í leiðinni er hann að draga þá niður í skítinn því að þetta fólk er skítsama um allt og alla, leiðist í vinnunni, fremja sálfsmorð og eru í uppreisn gagnvart foreldrum sínum og öðru fólki sem getur gefið þeim góð ráð. Klæðaburðurinn nefnist hinu dökka nafni GOTH og byggist sú tíska á miklu af svörtum efnum, síðum frökkum, gaddabeltum, og svo ekki síst tattóverum og eyrnalokkum út um allt. Þetta fólk gengur um í bolum sem innihalda slagorð eins og: “Dreptu foreldra þína, þú getur ekki tapað á því” og “Ég elska að hata fólk” o.s.frv. Manson æðið ætlar að ríða yfir Ísland líka og eru fullt af slíkum fyrirbærum hér á landi, og ef að þú er manson aðdáandi númer eitt að þá skal ég segja þér eitt “Zombie” ógeð að þú mátt fara með þitt viðbjóðslega feik meik til helvítis og allan þennan hrylling sem að þér fylgir. Mamma þín verður örugglega ánægð!

Svo langaði mig aðeins að nefna þetta með uniformið hans MM sem hann dressar sig uppí. Ég veit ekki hvort maðurinn er hrifinn af því að klæða sig upp eins og dúkka, eða hvort hann sé einungis að því til þess að hneyksla fólk. Mér finnst ekkert jafnógeðslegt og að horfa á hann í einhverri múnderingu, málaður eins trúður, þykjast vera að ríða hljóðnemastandinum og gefandi fólki puttann. Ég held að hann sé einungis að þessu til þess að vekja meiri hrifningu hjá sínum viðbjóðslega lýð sem að eru örugglega öll eins og hann. Hann er bara að sjúga peninga úr þeim öllum aftur og aftur alveg eins og Bill Gates græðir á sömu hugmyndinni aftur og aftur. Hann brýddar bara upp á aðeins á fleiri hugmyndum en síðast. Alveg eins og Bill Gates gerir. En ég hata hann, og alla sem að eru eins og hann, mér er alveg sama hvað þið segið um það, mér finnst það bara og end of story. Takk fyrir mig!