Ætla að koma með smá svar handa Arnarssyni, varðandi Kiss. Mér finnst Ace Frehley (lead guitar) vera svalasti og hæfileikaríkasti meðlimurinn. Þeir sem efast geta td. hlustað á gítarsóló hans í ,,She“ á Alive II, sem og ,,Black Diamond” eða ,,Rock Bottom“. Já fyrr talin lög eru æðisleg sem og ,,Cold Gin” eftir meistara Frehley. Annað lag eftir hann sem ég vil mæla einstaklega með er líka eftir hann, lagið Strange Ways. Heavy, grúví og grungie. Æðislegt lag. Geðsjúkt sóló hjá Ace.