Milan Kundera skrifaði í einhverri af bókunum sínum(en það er því miður alveg stolið úr mér hvaða bók það nú var) um þá furðulegu staðreynd, að þvert á það sem maður skyldi halda, þá virðist vera meira framboð af bókum í löndum þar sem “lítið sem ekkert gerist”(það er, lítið er um styrjaldir, fátækt, harðindi, byltingar ofl í þeim dúr) heldur en í löndunum þarsem eitthvað virkilega gerist(fátæktin, styrjaldirnar, harðræðisstjórnirnar, byltingarnar og það). Sem er frekar furðulegt því maður...